Úrval - 01.03.1975, Page 32

Úrval - 01.03.1975, Page 32
30 ÚRVAL sagt var, eyðilagði vináttuna — og þar af leiðandi viðurkenning á sársauka yfir brostnum vonum og ósk um að laga og endurbæta. Það er aldrei auðvelt að viður- kenna mistök sín og beiskyrði. En sé gengið að því hreinskilnislega og auðmýkt kemur í stað hroka, getur andrúmsloftið hreinsast og allt breyst til bóta. Allar mannlegar verur þarfnasf afsökunar. Hversu oft dæmum við óvægilega, tölum óvingjarnlega og hefjum okkur upp á kostnað ann- arra? Og hversu oft, ef rétt er tal- ið, var svo beðið afsökunar? Mjög sjaldan, er það ekki? Eitthvað djúpt í undirvitundinni verður fyrir hnjaski, einhver sið- ferðiskennd, jafnvel við minnstu móðgun. Og það kemst ekki aftur í jafnvægi, fyrr en móðgunin er viðurkennd og iðrun tjáð. Ég minnist þess að vinur minn, Clarence Lieb, læknir, sem nú er látinn, sagði mér frá manni, sem kom til hans með mörg sjúkdóms- einkenni: Höfuðverk, svefnleysi og meltingartruflanir. Engra líkam- legra orsaka varð vart. Loks sagði læknirinn: „Ég get því miður ekkert fyrir yður gert, nema þér segið mér, hvað veldur yður vondri samvisku." Eftir sára baráttu við sjálfan sig játaði maðurinn, sem var fram- kvæmdastjóri við fyrirtæki föður síns, að hafa setið á svikráðum við bróður sinn, sem dvaldist erlendis. Hann hafði hagrætt arfinum sér í hag eftir lát föðurins. Og þarna á stundinni gat þessi vitri læknir fengið manninn til að senda bróður sínum afsökunarbréf og láta af hendi myndarlega ávís- un til hans, sem fyrsta spor 1 átt til réttlátra skipta. Svo fylgdi hann honum fram á ganginn og horfði á hann Íeggja bréfið í póstkassann. Um leið og bréfið hvarf, brast maðurinn í grát og sagði: „Þakka yður fyrir, nú held ég, að mér batni.“ Og hann varð bráð- lega hraustur. Innileg afsökunarbeiðni treystir ekki einungis gallað samband held- ur gerir það einnig traustara. Fyrir nokkrum árum voru starfs- aðferðir mínar harðlega gagnrýnd- ar í guðfræðideild. Einn prófessor- anna, sem ég þekkti raunar vel, lét þung orð falla um mig. Ég gat einungis tekið þeim með beiskri þögn, þegar ég frétti, hvað hann hafði sagt. En svo, nokkru seinna, fékk ég bréf frá þessum manni, Hann var þá hættur að kenna og orðinn prestur. Nú sá hann fyrsta sinni í verki, hvílíka þörf fólk hefur fyrir trúarlegan skilning og lifandi sam- úð í sínu daglega lífi. Þar duga engar dauðar formúlur. Hann sagðist hafa haft rangt fyr- ir sér og vonaði, að ég gæti fyrir- gefið og afsakað mistök hans. Satt að segja hvarf sú andúð, sem ég hafði fengið á þessum manni, eins og dögg fyrir sólu. Meira að segja dáðist ég að hon- um og sagði honum það strax í svarbréfi mínu. Alltaf síðan höfum við verið vinir. Stundum hikar fólk við afsök- unarbeiðni af ótta við synjun. Auð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.