Úrval - 01.03.1975, Page 52

Úrval - 01.03.1975, Page 52
50 ÚRVAI PÍNULITLA VETRARBRAUTIN OKKAR. Við menn héldum eitt sinn í fáfræði okkar, að jarðarkríl- ið, sem við búum á, væri miðdep- ill alheimsins. Kopernikus kom okkur á aðra skoðun, þegar hann fyrir 431 ári kom með þá bylting- arkenndu hugmynd, að jörðin sner- ist um sólu, en ekki sólin um jörðu. Þetta var á þeim tíma brjálæðis- leg fullyrðing og samt var hún að- eins lítill hluti sannleikans. Það var fyrst í byrjun þessarar aldar, að stjörnufræðingar komust að raun um, að sólin var ekki einu sinni miðja heimsins, heldur var hún í afkima vetrarbrautarinnar, þess al- heims sem þá var þekktur. Og það átti fleira eftir að koma upp á teninginn. Fyrir um það bil fimmtíu árum komst bandaríski stjörnufræðingurinn, Edwin Rub- ble, að raun um að þokukenndir ljósdeplar á himinhvolfsmyndum voru ekki stjörnur eða gasský, heldur sjálfstæðar vetrarbrautir, „ey-heimar“ af sömu gerð og okk- ar, en svo langt í burtu að ljós- myndirnar sýndu þær sem eina stjörnu. Nú vitum við, að vetrarbraut- irnar eru jafn óteljandi og gras- strá á túni. Þær eru að minnsta kosti nokkur hundruð milljarðar. f stærsta stjörnukíki í heimi, á Mount Palonar í Kaliforníu, er unnt að telja um milljón vetrar- brauta innan Karlsvagnsins eins. Á hvern hátt geta menn gert sér grein fyrir víðáttu heimsins eins og við þekkjum hann í dag? Fyrst verður að finna mæliein- ingu, sem er stór, en samt ekki óskiljanlega stór, og stjörnufræð- ingar nota ljósárið. Það er sú fjar- lægð, sem ljósið fer á einu ári með 300.000 km hraða á sekúndu. (Það er nærfellt 1,5 billjónir km). En jafnvel með svo stóra einingu verða tölurnar svimandi. Hvað seg- ir það okkur, að vegalengdin til fjarlægasta himintungls sem fund- ist hefur, virðist vera 10 milljarðar ljósára (15.000 trilljónir km)? Nei, við skulum reyna eitthvað annað. Fjarlægðin til sólarinnar er um það bil 150 milljónir km, eða átta ljós- mínútur. Ef við ímyndum okkur, að þessi fjarlægð sé jöfn þykktinni á pappírnum, sem þetta er prentað á, verður fjarlægðin til næstu stjörnu -4.3 ljósár) 21 meters hár pappírsstafli. Þvermál vetrarbravit- arinnar (1100.000 ljósár) yrði 500 km hár stafli og til að ná ystu endimörkum þess heims, sem við þekkjum að einhverju leyti, yrði staflinn að vera 50 milljón km hár, eða þriðjungur vegalengdarinnar til sólu! Rubble komst ekki aðeins að raun um, að himingeimurinn væri mun stærri en menn höfðu áður talið, heldur, að hann væri stöð- ugt að þenjast út. Stjörnukerfin fjarlægjast hvert annað og því meiri, sem fjarlægðin verður, því meiri verður hraðinn. Þessar upp- götvanir urðu upphafið að algerri byltingu í stjörnufræðinni, eða stjarneðlisfræðinni, eins og hún er líka kölluð. MÁL HIMINSINS. Með mæli- tæki því, sem kallast prismasjón- auki, geta stjörnufræðingar skil-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.