Úrval - 01.03.1975, Síða 63

Úrval - 01.03.1975, Síða 63
GLAÐVÆRA GISTIHÚSIÐ HENNAR MÖMMU 61 hlutskiptis síns, að mamma dró hann snarlega íram í eldhúsið, þar sem Sawyers hjónin gátu ekki heyrt til hans. „Þú ættir að skammast þín,“ sagði hún öskureið. „Vesalings kon- an hefur misst einkabarn sitt, og svo lætur þú svona ferlega.“ „Mér þykir leitt að hún skuli hafa misst barnið sitt,“ hrópaði pabbi. „En ég get ekki skilið af hverju ég þarf að þvo mér í eld- húsinu og sofa með lappirnar í lausu lofti.“ „Af hverju ætlarðu ekki að hafa þær uppi í beddanum?" spurði mamma. „Af því hann er of stuttur. Þetta er barnastærð!“ Pabbi strunsaði inn í borðstof- una og renndi sér niður á bedd- ann og mamma sá að pabbi hafði rétt fyri rsér, hann var 30 senti- metrum of stuttur. „Ég skal kippa þessu í lag,“ lof- aði mamma. „Ég set appelsínukassa fyrir aftan og púða þar ofan á. Þá fer vel um þig. Og þar að auki verða þau ekki nema í þrjá daga ennþá. Þau leigðu herbergið bara í viku og fara því á sunnudaginn. En þegar sunnudagurinn rann upp, voru Sawyers hjónin ófús að fara. „Megum við ekki vera aðra viku til?“ bað herra Sawyer. „Kon- unni minni líður svo miklu betur. Hún segir að sér líði hvergi betur. Hún VERÐUR að fá að vera hérna svolítið lengur. Næsta vika leið, og þá skeði ná- kvæmlega það sama. „Nú jæja, tautaði pabbi. ,.Ég ferðast sem betur fer mikið, og ég get að minnsta kosti haft það nota- legt, þegar ég er að heiman." En hann var ekki lengi reiður. Frú Sawyer var verulega elskuleg kona. Fljótlega var hann líka far- inn að reyna að hressa hana upp. Pabbi gat heldur ekki horft fram- hjá peningunum, sem streymdu inn. Þau áttu nú orðið álitlega upp- hæð í bankanum, og mamma var ekki síður ánægð með það. Pabbi lét heldur ekkert tækifæri til að næla sér í nokkra dali ganga sér úr greipum. En gagnstætt mömmu freistuðu stóru tækifærin hans. „Ég get ekki eytt tímanum við svona smápeninga, eins og þú,“ sagði hann við mömmu. Eitt sinn er pabbi var á löngu viðskiptaferðalagi, fékk mamma hugboð um að ekki væri allt með felldu — hún fékk alltaf við og við grun um eitt og annað, og venjulega hafði það við rök að styðjast. Að þessu sinni varð hún svo óróleg að hún klæddi sig upp og fór í bankann, þar sem hún bað um að fá að vita hve mikið stæði á reikningum þeirra. — Klippt og skorið níu dalir! „Jú, það var alveg rétt,“ sagði gjaldkerinn. Eiginmaður hennar hafði tekið allt annað út fyrir skömmu. Mamma vissi ekki hvað hún átti að hugsa. Hún pantaði langlínu- samtal við pabba — en það var munaður sem hún veitti sér sjald- an. Pabbi róaði hana, en gaf henni óskýr svör. Jú, hann hafði tekið peningana út. Hann kæmi heim
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.