Úrval - 01.03.1975, Page 67

Úrval - 01.03.1975, Page 67
GLAÐVÆRA GISTIHÚSIÐ HENNAR MÖMMU 65 „ef vinir þínir vilja endilega nota handklæðin mín til að pússa skóna sína með, hef ég ekki í sinni að láta þá hafa fleiri! En ég hef hérna mjúkar tuskur, sem þeir geta feng- ið í staðinn." Þetta voru mjög notalegir og kurteisir ungir menn, og mamma naut þess að vera „stóra systir" þeirra; hún bauð alltaf tveim eða þrem til hádegisverðar, skammaði þá, þegar þess var þörf, hlustaði á ástarsorgir og gætti þess að þeir snyrtu á sér hárið og hugsaði um þá, þegar þeir voru veikir. Koma mín í þennan heim breytti þar engu um. Pabbi var vanur að segja: „Ef þú hefðir afgreitt í versl- un eða gengið í hús og saumað fyr- ir fólk, hefði ungbarn gert strik í reikninginn. En við þetta starf skipti það engu máli. Það er ann- ars fjári hagsýn kona, sem ég er kvæntur!“ Endurtekningar pabba á því að hún væri „fjári hagsýn“ pirruðu hana. „Stundum er ég farin að trúa því, að þér sé bara ekkert á móti skapi að ég vinni,“ tautaði hún. „Það er alveg rétt,“ fullyrti pabbi. „Vegna þess að þér líður vel með það. Þann dag, sem þú færð leið á því, skaltu bara hætta!“ „Hvernig á ég að geta það? Þú, sem ert alltaf á kafi í vafasömum viðskiptum?" „Þau eru ekki vafasöm," mót- mælti pabbi í hvert sinn. „Nei, yf- irleitt eru þetta einstök tækifæri!" Og hann bætti uppáhaldsorðtæki mömmu við: „Það er blátt áfram ekki heiðarlegt að láta tækifærin ganga sér úr greipum, þegar ekki þarf annað til en rétta höndina út eftir þeim.“ Næsta uppátæki pabba reyndist sannarlega vafasamt. Hann keypti þvottahús í nágrannabænum Tuc- son. „En þú kannt ekkert til rekstrar þvottahúss!“ stundi mamma, þegar hún var að byrja að jafna sig. „Nei, það kann ég ekki. En gamli forstjórinn verður áfram, og hann er í sérflokki. í stað þess að fyrri eigandi hirði ágóðann, rennur hann nú í minn vasa. Og hann er mikill. 300 dalir á mánuði! „Hver heldurðu að vilji láta svo- leiðis fyrirtæki af hendi, ótilneydd- urþ“ „Vegna þess að hann Stacey er að verða gamall og vill eiga rólega daga hjá börnunum sínum á aust- urströndinni.“ Mamma hristi höfuðið. „Það er eitthvað gruggugt við þetta.“ Og það reyndist rétt. Stacey gamli reyndist, eins og pabbi orðaði það: „Bannsettur þrjótur!" í stað þess að flytja, opn- aði hann nýtt þvottahús. Og hann tók ekki einungis með sér þennan forláta forstjóra, heldur besta verkafólkið og flesta viðskiptavin- ina. Pabbi stundi og vorkenndi sér, hann gekk fram og aftur um gólf- ið. „Það getur ekki talist, að nokk- ur viðskipti séu lengur. Ég get ekki lokið greiðslunum, og hvað er þá til ráða? „Ráða? Ég myndi láta mig hverfa, í þínum sporum,“ svaraði mamma kuldalega. „Láttu hann hirða þetta andstyggilega þvottahús sitt. Láttu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.