Úrval - 01.05.1977, Blaðsíða 26
24
ÚRVAL
með saltaðan þorsk frá Kamsjatka-
skaga í Síberíu, púður frá Shanghai
til Formósu, sykur frá Filippseyjum
og timbur frá Brasilíu. Hann hefur
bælt niður þrjár uppreisnir á
skipsfjöl, lifað af ofsastorma, falin rif
og sprenginguna á Krakatoa í
Austur-Indíum, þessa eldfjalla-
sprengingu, sem drap 36.000 manns
í ágúst árið 1883, en samt ekki hann
Joshua Slocum, sem sigldi fram hjá
eldfjallaeyjunni, meðan gosið stóð
sem hæst.
Hann hefur aflað sér mikils fjár.
Kappsigling hans til þess að ná
hraðskreiða póstskipinu frá Honolulu
færði honum heilan sekk af gulli,
sem var álitinn 5000 dollara virði.
Hann hefur líka misst aleiguna.
Fallega barkskipið ,,Aquidneck”
brotnaði í spón úti fyrir Brasilíu-
strönd, fullt af timbri, og gerði hann
að öreiga.
Allt frá sextán ára aldri hefur allt
líf Slocums snúist um saltan sjá.
Hann eignaðist sjö börn og voru þau
öll fædd á hafi úti eða í erlendum
hafnarborgum. Eiginkonan, sem ól
honum öll þessi börn, hin dásamlega
Virginía, sigldi með honum í hverri
ferð, allt frá hveitibrauðsdagasigl-
ingu þeirra frá Sydney í Ástralíu til
síðustu ferðarinnar á „Aquidneck”.
Þegar uppreisnarmaður stakk fyrsta
stýrimann Slocums með hnífi um
borð í „Norðurljósinu” árið 1882,
varði Virginía líf eiginmanns síns
með skammbyssur í báðum höndum,
á meðan hann kom vitinu fyrir
uppreisnarmennina. Það varð honum
skelfilegt áfall, þegar hún dó, 34 ára
að aldri. Hann giftist 24 ára gamalli
frænku hennar 19 mánuðum seinna,
og bar hún nafnið Hettie. En henni
tókst aldrei að skipa sess Virginíu á
fullnægjandi hátt. Eftir að þau höfðu
farið í heljarmikla sjóferð saman,
5500 mílna ferð frá Brasilíu til
Karólínufylkjanna, skildu þau að
miklu leyti að skiptum og bjuggu
sjaldan saman eftir það.
Þarna er hann þá, aleinn eins og
hann vill reyndar helst vera nú orðið,
hann Joshua Slocum, fæddur árið
1844 í Nova Scotiafylki á tíma stóru
seglskipanna. Hann varð háseti 16
ára að aldri, annar stýrimaður, þegar
hann var orðinn 18 ára og skipstjóri á
eigin skipi 25 ára að aldri, konungur
úthafanna 37 ára og úr leik
fimmtugur. Joshua Slocum, úrvals-
sjómaður, neitar af hinni mestu
þrákelkni að koma nálægt gufuafli
eða járnskipum, en stundar þess í
stað snattvinnu á vöruflutningabát-
um í höfninni í Boston og lætur sig
dreyma um dýrðardaga seglskipanna.
Hann hatar þetta starf sitt. Og einn
dag grefst hann næstum undir
kolafarmi. Hann afber þetta ekki
lengur og ákveður að fara aftur á
sjóinn.
VORIÐ 1893: Á beitiengi einu í
Fairhaven í Massachusettsfylki liggur
skrokkurinn af gömlu ostruveiði-
skipi, sem er að grotna þar niður.
Slocum býðst þetta skip, því að
eigandinn er vinur hans. Slocum
.ajJÚS