Úrval - 01.05.1977, Side 101

Úrval - 01.05.1977, Side 101
ÞETTA ER SKOTLAND YARD 99 Það sama gerðu sex menn vopnaðir með skammbyssum. Neesham leit á úrið sitt. 14.45. „Nú kemur bíllinn með pening- ana,” heyrist lágt og hógværlega í talstöðinni. Það er varðmaður uppi á byggingu gegnt verksmiðjunni, sem talar. Síðan þögn. Neesham veit, að sá sem stjórnar aðgerðunum, bíður þar til rétta stundin er runnin upp til þess að láta skríða til skarar. Sé þess nokkur kostur, verður að standa ræningjana að verki, en samtímis verður fyrir alla muni að hindra að úr árás þeirra verði. Það má ekki stofna lífum saklausra í hættu. 50 sekúndum seinna: ,,Nú!” Neesham heyrir hróp og hark. Fjórir „flugmenn” kasta sér á jafnmarga vopnaða glæpamenn og kasta þeim í götuna. Tveir í viðbót stökkva upp í bíl og þeysa burt með æsihraða, en þrír bílar undir stjórn reyndustu ökumanna Scotland Yard veita þeim eftirför. Neesham fylgist með eftirförinni í talstöðinni og fær skömmu síðar gagnorða tilkynningu: „Bíllinri stöðvaður, tveir menn afvopnaðir og handteknir.” Hann teygir úr sér of snýr sér aftur að skrifborðsvinnunni. Enn einn sigur O-.ir „flugmennina”, sem á síðasta ári handtóku 1212 menn og björguðu verðmætum fyrir tvær milljónir punda. Kl. 15.00. I stórhýsinu vinna karlar og konur af mikilli iðni við allt stjórnunar- og rannsóknarstarfið, sem Scotland Yard gengur fyrir. Yfirlögregluþjónn í öryggislög- reglunni plægir sig í gegnum stafla af „neðanjarðarbiöðum” til þess að vera kunnugur hinum ýmsu mót- mælahópum. Með því að taka mið af stemningunni í þeim og gera sér grein fyrir viðbrögðum þeirra er hægt að ákvarða hve mikið öryggislið þurfi að vera tiltækt, þegar erlendur stjórnmálamaður kemur í heimsókn til London pftir fáeina daga. Öryggislögreglan var stofnuð 1884 til þess að vera á varðbergi gegn hryðjuverkum írskra þjóðernissinna, og þetta leynilega lögreglulið hefur nú til dags í þjónustu sinni um 300 manns, sem þjónar sem lífverðir háttsettra manna, innlendra og erlendra, fylgist með fólki, sem sækir um breskan ríkisborgararétt, sann- prófar upplýsingar um róttækar stjórnmálahreyfingar, stundum með því að senda út fólk til að ganga 1 þær. Starfsmenn í upplýsingadeildinni eru að undirbúa skólasamkeppni næsta árs, en það á að heita „Hjálpum lögreglunni, ’ ’ og hefur að markmiði að gera börn óhrædd við lögregluna. Sigurvegararnir fá í verðlaun flugferð til Kanada, þar sem þeir verða sérstakir gestir kanadísku riddaralögreglunnar. Eitt af föstum verkefnum John Cracknells, lögregluforingja, er að skipuleggja lögreglueftirlitið við allar opinberar sýningar og athafnir. Reglubók iögreglunnar fyrir opnun þingsins er upp á þrjátíu síður. En
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.