Upp í vindinn - 01.05.2007, Side 20

Upp í vindinn - 01.05.2007, Side 20
... Upp í vindinn Mynd 7. Á myndinni má sjá skrið mismunandi styrkleikaflokka steypu. Hér eru eingöngu sýndar formbreytingar vegna skriðs, ekki formbreytingar á fjaðursviði. [9] Mynd 8. Samanburður á skriði steypu i styrkleikaflokkum C25, C35, C50 og C70 með íslensku basalti með mismunandi miklu holrými. Annars vegar er nokkuð þétt íslenskt basalt (blá lína) og hins vegar opið íslenskt basalt (bleik lína). Steypa í styrkleikaflokkum C25, C35 og C50 var I eitt ár undir álagi. Steypa í styrkleikaflokki C70 hefur verið undir álagi i u.þ.b. tvö og hálft ár. [9] 1:1991, Eurocode 2, sem er sá staðall sem er í gildi hér á landi, eru niðurstöðurnar eftirfarandi. Samanburður reiknilíkans við steypu með þéttari fylliefnum: Eurocode 2 gerir ráð fyrir að skrið- hraðinn sé orðinn mjög lítill eftir ár. Mæld gildi sýna hins vegar að svo er ekki. Þetta má sjá á mynd 9. Þegar steypan hefur verið undir álagi í rúm fjögur ár er munurinn orðinn umtals- verður. Á mynd 9 eru sýndar form- breytingar á fjaðursviði auk skriðs. Ef aðeins eru bornar saman formbreyt- ingar vegna skriðs þá má sjá að munurinn á mældum gildum og reiknuðum eftir fjögur ár er u.þ.b. 30%. er um að ræða steypu með mjög opnu basalti. Hér ofmetur Eurocode 2 skriðið mikið frá byrjun. Mismun- urinn minnkar hins vegar með tíma- num. Eftir fjögur ár er mismunurinn, ef aðeins er horft til formbreytinga vegna skriðs, u.þ.b. 15% og fer minnkandi. 5. Lokaorð Rannsóknir á fjaðurstuðli og skriði steinsteypu hafa staðið yfir hjá Rannsóknastofnun byggingariðnað- arins frá árinu 1997. Þessar rann- sóknir hafa aðallega beinst að áhrif- um fylliefna á fjaðurstuðul og skrið. Mælingar á fjaðurstuðli eru tiltölu- lega einfaldar og fljótlegar i' fram- kvæmd. Áhrif íslensku fylliefnanna á fjaðurstuðul eru því nokkuð vel þekktar. Á grundvelli niðurstaðna þessara rannsókna var skrifað þjóðar- skjal sem fylgir þeim staðli sem í gildi er hér á landi, FS ENV 1992-1-1:1991. Þar er kveðið á um hvernig reikna skuli fjaðurstuðul steinsteypu með fylliefnum sem eru ekki áberandi opin annars vegar og opin (gleypin) hins vegar. Mælingar á skriði eru hins vegar mjög tímafrekar og flóknar. Mæling- ar á skriði steinsteypu með íslensku basalti hófust hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins í byrjun árs 2001 og standa enn yfir þegar þetta er skrifað. Þessar mælingar hafa þegar sýnt það er full ástæða til að huga vel að því hvort ekki sé ástæða til að taka tillit til þess hvaða fylliefni er notað þegar um er að ræða bygg- ingarhluta þar sem skrið steypunnar er tiltölulega mikið. Þeir bygg- ingarhlutar sem gætu verið um að ræða eru t.d. steypt brúarmannvirki, bitar, súlur, plötur með mikilli spenni- vídd svo eitthvað sé nefnt. Heimildir [1] A.M. Neville & J.J. Brooks., "Concrete Samanburður reiknilíkans við steypu með opnum fylliefnum: Á mynd 10 má sjá samanburð niður- stöðu mældra gilda og reiknaðra. Hér 0 365 730 1.095 1.460 1.825 Álagstími (dagar) Mynd 9. Samanburður á mældum gildum C40-steypu með þéttu ísl. basalti (þétt 2) og reiknuðum gildum skv. FS ENV 1992-1-1:1991 Viðauka 1 (Eurocode 2). [9] 20

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.