Upp í vindinn - 01.05.2007, Side 52
... Upp í vindinn
Sjálfbær byggingariðnaður og
heildarsýn
Mannvirki eru almennt byggð til að
endast áratugum saman, og jafnvel
þegar byggð eru bráðabirgðamann-
virki þá er þeim ætlað að endast um
árabil. Iðulega er gert ráð fyrir að
ending bygginga sé minnst 50 ár,
sbr. gögn frá EU ("Guidance paper
F), EOTA (1999) og ISO (2000).
Bygging sem heildarferli hefst þeg-
ar væntanlegur eigandi byrjar að
gera áætlanir um nýja byggingu, og
því líkur þegar hún er rifin og efni
endurnýtt eða fargað. í vaxandi
mæli er ætlast til að allt heildarferlið
sé skoðað. í reynd er með þessu
stefnt að, og reynt að tryggja, sjálf-
bærni í byggingariðnaði, en þá má
ekki gleymast að t.d. EU kröfur (í
Samþykkt um byggingarvörur; e:
Construction Products Directory,
CPD) gera ráð fyrir að hagkvæmni ráði ferðinni.
Kröfur til byggingar stýrast m.a. af grunnkröfunum í
"samþykkt um byggingarvörur". Bygging er umtalsverð
fjárfesting og á rekstrartíma bætist enn við, það er því
eðlilegt að eigandinn reyni að hámarka árangur ferlisins.
Slík hámörkun þarf að taka tillit til ólíkra skeiða í ferlinu,
og mismunandi krafna sem gilda fyrir hvert um sig. Öll
framkvæmdin, og síðari notkun byggingar, þarf vitaskuld
að uppfylla kröfur um notagildi, öryggi og hollustu en
einnig önnur atriði eru mikilvæg. Byggingarkostnaður
ræðst að verulegu leyti af stærð byggingar, efnisvali og
því hversu flókin hún er í gerð og uppbyggingu. Efnis-
notkun og áhrif hennar á umhverfið
ræðst af tegund efna, endingu
þeirra og viðhaldsþörf til að tryggja
eðlilegan nottíma.
Endingartími byggingarhluta og
bygginga er mikilvæg stærð
varðandi hagkvæmni, en það er
erfitt að ákvarða endingartímann;
• hver bygging er "einstök"
• endingartíminn er langur
• margir ákvarðanaaðilar
• mikið staðbyggt
í stöðlum (ISO, 2000) er eftirfarandi
skilgreiningar að finna:
Hönnun með tilliti til endingar
(SLP: Service life planning)
Áætlanagerð og hönnun til að
tryggja að endingartíminn verði
lengri heldur en hönnunarendingin (DLB: design life of
building).
Vistferilsgreining (LCA: Life Cycle Assessment)
Greining á umhverfisáhrifum vöru, þ.e. skoðað er allt
flæði (orka, efni, vinna) sem framleiðsla, eða notkun
vöru, krefst.
Heildarkostnaður (LCC: Life Cycle Cost)
Kostnaður vegna vöru (eða þjónustu) allan notkunartím-
ann, almennt notað "markaðsvirði" og erekki sérstaklega
tengt framleiðsluháðum þáttum.
Dr. Björn Marteinsson
Dósent við verkfræðideild Háskóla
íslands og sérfræðingur við
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins
52