Upp í vindinn - 01.05.2007, Page 58

Upp í vindinn - 01.05.2007, Page 58
... Upp í vindinn Mynd 2: Möguleg útfærsla á stlgapöllum [4]. öryggi þeirra er oft minna en fólks sem ekki er fatlað. Erfitt er fyrir þá að vita fyrirfram hvernig aðstaðan er til að- og frágengis. Það er því mikilvægt að góðu aðgengi fylgi einnig gott frágengi. Tæknilegar útfærslur Rannsóknastofnun byggingariðnaða- rins hefur gefið út bókina „Aðgengi fyrir alla" [2], sem fjallar um hönnun bygginga m.t.t. aðgengismála. Bókin fjallar um kröfur og lausnir á þessum málum og er mjög gott framtak. Hún fjallar þó ekki sérstaklega um frá- gengi frá byggingum. Það eru mörg atriði sem skipt geta máli við hönnun „frágengis fyrir a\\a" og þarf að hafa í huga við brunahön- nun bygginga: • Flótti á öruggan stað. Fyrir þá sem ekki geta bjargað sér sjálfir út er mögulegt að rýming eigi sér stað á „öruggan stað". Hann þarf að rúma nógu marga og vera vel staðsettur og vel merktur (sjá mynd 1). Brunastúka eða stigahús geta verið heppilegir staðir, en gæta ber að því að aðrir geti komist framhjá. Hjólastólar þurfa 1,5-2 m2 fyrir hvern einstakling (sjá mynd 2). Frá þessum stað verður að vera hægt að láta vita af sér og góðar aðstæður þurfa að vera til að flytja fólkið þaðan á endanlegan áfangastað. „Öruggi staðurinn" þarf að vera sjálfstætt brunahólf, þar sem tryggt er að eldur eða reykur komist ekki í fyrirskrifaðan tíma. Hér skiptir reykþétting og frágangur miklu máli sem og út- færsla loftræsikerfis m.t.t. reykút- breiðslu. • Fyrirkomulag flóttaleiða. Flóttaleiðir þurfa að vera auðrataðar fyrir alla og því skiptir miklu máli hvort gera þurfi ráð fyrir að fólk þekki ekki flótta- leiðirnar. Huga bera að því að ferðatími vissra einstaklinga get- ur verið mun lengri en fyrir full fríska einstaklinga, allt niður í 0,1 m/s. Hjólastólar geta beðið á gangi, sem skv. íslensku bygg- ingarreglugerðinni er 1,3 m að lágmarki eða í stigahúsi, séu stiga- pallar nægjanlega rúmir (sjá mynd 2). • Opnun hurða. Það getur verið erfitt fyrir hreyfihamlaða að opna dyr á móti flóttaátt. Kraftur sem þarf til að opna hurð ætti að vera undir 120 N og opnunarkraftur handfangs undir 25 N. Opnunar- búnaður þarf að vera staðsettur svo að fólk í hjólastól nái í hann. í mörgum tilvikum getur rafmagns- opnun leyst málið, en þá þarf einnig að huga að rafmagns- örygginu (varaaflgjafa). • Þröskuldar. Lágir þröskuldar geta verið óyfirstíganlegir fyrir marga. Felliþröskuldar eru leyfðir í brunahólfandi hurðum, en eru ekki eins þéttir og öruggir og hefðbundnir þröskuldar. Hér verður að vega saman öryggi brunahólfunar og öryggi fólks í rýmingu. • Stigar og rampar. Stigabreiddir, útfærsla þrepa og handriða skipt- ir allt máli varðandi örugga rým- ingu um viðkomandi flóttaleið. Rampar mega t.d. ekki halla meira en 1:20, en ef hæðarmun- ur er minni en 0,6 m má heimila skábraut allt að 1:15 [1]. • Lyftur. Almenna reglan er að nota ekki lyftur í eldsvoða, enda segir í byggingarreglugerð [1]: „Lyftur má ekki nota í eldsvoða". Jafnframt segir í byggingar- reglugerð að „Lyftur í opinberum byggingum og byggingum ætl- VERKFRÆÐISTOFA SUÐURNESJA 58

x

Upp í vindinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.