Upp í vindinn - 01.05.2014, Side 4

Upp í vindinn - 01.05.2014, Side 4
LEIÐARI Árlegt rit útskriftarárgangs umhverfis- og bygg- ingarverkfræðideildar Háskóla íslands, .Upp í vindinn" kemur nú út í 33. skipti. Ritið þjónar aðallega tvennum tilgangi. í fyrsta lagi er blaðinu ætlað að vera vettvangur nemenda og kennara deildarinnar auk annarra fræðimanna og aðila á vinnumarkaði til að koma á framfæri nýjungum og áhugaverðum niðurstöðum rannsókna á faglegum grundvelli. í öðru lagi er blaðið stór liður í fjáröflun útskriftarárgangs deildarinnar fyrir námsferð sem farin verður í vor undir leiðsögn kennara. í þetta skiptið er förinni heitið til Sameinuðu arabísku furstadæmanna, en Hörn Hrafnsdóttir mun að þessu sinni leiða hópinn sem mun meðal annars skoða hæstu byggingu heims, Burj Khalifa, og sækja hina víðfrægu mosku Sheikh Zayed heim. Fyrir hönd útskriftarárgangs umhverfis- og byggingarverkfræðideildar Háskóla íslands 2014 vill ritstjórnin þakka greinarhöfundum, auglýsendum og öllum öðrum sem komu að blaðinu fyrir gott samstarf og gott innlegg 1 frábært blað sem við erum svo sannarlega stolt af. Efsta röð frá vinstri: Ólafur Hafstein Pjetursson, Sturla Sigurðarson, Sindri Þrastarson, Birgir Pétursson, Ragnar Þór Þrastarson, Bjarni Guðni Halldórsson, Börkur Smári Kristinsson, Bjartur Guangze Hu, Kjartan Pálsson, Gísli Steinn Arnarson. Miðröð frá vinstri: Arna Kristjánsdóttir, Kristín Hallsdóttir, Stella Kristín Hallgrímsdóttir, Herbjörg Andrésdóttir, Arnór Bragi Elvarsson. Neðsta röð frá vinstri: Hrund Sigfúsdóttir, Ævar Valgeirsson, Ásmundur Þrastarson, Bergljót Hjartardóttir. Á myndina vantar Báru Guðmundsdóttur og Margréti Ósk Aronsdóttur. 4 I ...upp í vindinn

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.