Upp í vindinn - 01.05.2014, Page 7
UMHVERFIS- OG BYGGINGARVERKFRÆÐIDEILD - YFIRLIT ÁRSINS 2013
Frá afhendingu styrks úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents:
frú Vigdís Finnbogadóttir, Herbjörg Andrésdóttir styrkhafi og Hilmar Bragi
Janusson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla íslands.
Árið 2013 einkenndist talsvert af vinnu að gæða-
málum en Háskóli íslands er að vinna að sjálfsmati
samkvæmt áætlun Menntamálaráðuneytisins
um Rammaáætlun um eflingu gæða á sviði
æðri menntunar á íslandi (e. Icelandic Quality
Enhancement Framework, QEF). Rammaáætlunin
gerir ráð fyrir að allir háskólar séu teknir út á 5 ára
fresti með áherslu á gæðamál kennslu og er verkinu
stýrt af Gæðaráði háskóla (e. Quality Board) sem
er skipað erlendum sérfræðingum undir stjórn dr.
Norman Sharp. Innan háskólans fer matið þannig
fram að allar deildir fara í sjálfsmat sem tekur um
eitt misseri og byggt á því er háskólinn metinn.
Umhverfis- og byggingarverkfræðideild fór í gegnum
sjálfsmatið á vormisseri 2013 og eru niðurstöðurnar
birtar í sjálfsmatsskýrslu. Nemendur tóku virkan
þátt í úttektinni en deildin fékk einnig til liðs við sig
Helga Valdimarsson, fyrrum framkvæmdastjóra
Almennu Verkfræðistofunnar, sem fulltrúa
atvinnulífsins og Hákan Stille, Professor Emeritus
við Konunglega Tækniháskólann í Svíþjóð, sem erlendan
ráðgjafa. Félagsvísindastofnun tók umfangsmikil viðtöl við
nokkra hópa nemenda til að draga fram styrkleika og veikleika
frá sjónarhóli nemenda. Helstu styrkleikar deildarinnar eru
góð tengsl kennara við nemendur, virkt samstarf við fyrirtæki
og stofnanir og ánægja útskrifaðra með að hafa hlotið breiðan
og hagnýtan grunn fyrir störf sín eða frekara nám. Tækifæri
til styrkingar voru helst efling verklegs náms, enn frekari
efling umhverfisverkfræðikennslu deildarinnar, meiri aðkoma
deildarinnar að símenntun verkfræðinga í starfi og styrking innri
ferla við framkvæmd doktorsnáms.
Gæðamál kennslu verða ávallt í brennidepli í háskólastarfinu
til hagsbóta fyrir nemendur og munu stuðla að áframhaldandi
stöðu Háskóla íslands á lista Times Higher Education World
University Rankings sem einn af 300 bestu háskóium í heimi.
BS nám
Á árinu luku 27 BS nemendur námi sem er heldur færra en
undanfarin ár. Margir þessara nema halda áfram námi við
deildina og Ijúka MS gráðu sem gefur þeim rétt til að fá starfsheitið
verkfræðingur. Námið er fjölbreytt og tekur á helstu fagsviðum
umhverfis- og byggingarverkfræði með tækifæri til nokkurrar
sérhæfingar en það er þó ekki fyrr en í meistaranáminu sem
færi gefst til verulegrar sérhæfingar. BS nemendur standa
að öflugu nemendafélagi, Naglarnir, og skólaárið 2013-2014
er Arnór Bragi Elvarsson formaður félagsins. Deildin hefur
ávallt átt mjög gott samstarf við Naglana en fræðast má um
starfsemi félagsins á heimasíðu þess, www.naglar.hi.is. Á hverju
ári, þann 21. desember, er úthlutað styrk úr Minningarsjóði
Þorvalds Finnbogasonar stúdents og fellur hann i hlut þess
verkfræðinema sem er með hæstu meðaleinkunn eftir fyrstu tvö
árin í námi. Annað árið i röð var það nemandi frá Umhverfis-
og byggingarverkfræðideild sem fékk styrkinn, Herbjörg
Andrésdóttir, en frú Vigdís Finnbogadóttir afhenti styrkinn.
Meistaranám
Á árinu vörðu 7 MS nemendur ritgerðir sínar sem voru heldur
færri en undanfarin þrjú ár þegar ríflega 13 útskrifuðust að
meðaltali. Meistaranám er öflugt en fjöldi nema í MS námi er
nú um 60 og koma fjölmargir einstaklingar frá fyrirtækjum og
stofnunum að leiðbeiningu meistaraverkefnanna.
Meistaranemendurnir eru: Alexandra Kjeld (Microbial methane
oxidation at the Fíflholt landfill in lceland), unnið í samstarfi
við EFLU, Háskólann í Sherbrooke, og Samband íslenskra
sveitarfélaga; Anna Heiður Eydísardóttir (Relating measured
physical roughness of hydropower waterways to hydraulic
roughness), unnið í samstarfi við Verkísog Landsvirkjun; Ágúst
Guðmundsson (Model Investigations of a Juvenile Fish Bypass
System at Urriðafoss HEP), unnið í samstarfi við Landsvirkjun
og Siglingastofnun; Gísli Steinn Pétursson (Líkantilraunir
veltuþróa með lágar Froude tölur við Urriðafossvirkjun), unnið í
samstarfi við Landsvirkjun og Siglingastofnun; Harpa Dögg
Magnúsdóttir (Dregur mat á umhverfisáhrifum úr neikvæðum
umhverfisáhrifum?), unnið í samstarfi við Skipulagsstofnun;
Kevin Franke (Investigation of the Complex Flow in High
Energy Spillways by Means of Computational Modelling and
Experiments), unnið í samstarfi við Landsvirkjun; og Valur
Arnarson (Háhýsi á jarðskjálftasvæðum), unnið í samstarfi við
Hnit.
Nánari upplýsingar um verkefnin, leiðbeinendur og samstarfsaðila
er að finna á vefsíðu deildarinnar og þar má einnig finna tengil
á ritgerðirnar.
Doktorsnám
Um 10 doktorsnemendur stunda nám við deildina og munu
líklega 3-4 verja doktorsritgerðir sínar 2014 en engin vörn fór
fram 2013. Doktorsverkefnin eru fjölbreytt og eru mikilvægur
liður í rannsóknum og rannsóknasamstarfi deildarinnar.
Doktorsverkefnin eru iðulega unnin í samstarfi við aðila frá
erlendum stofnunum og háskólum. Doktorsverkefni og greinar
sem birtar hafa verið úr doktorsrannsóknunum má finna á
heimasíðu deildarinnar.
Rannsóknir
Rannsóknir deildarfólks snerta fjölmörg svið innan greinarinnar
og eru unnar í samstarfi við innlenda og erlenda fræðimenn,
fyrirtæki og stofnanir. Rannsóknirnar eru styrktar af
samkeppnissjóðum og tekur deildarfólk þátt í fjölda alþjóðlegra
rannsóknarverkefna og leggja doktorsnemar fram drjúgan
skerf af rannsóknarvinnunni. Sem dæmi um alþjóðleg
rannsóknarverkefni má nefna Evrópuverkefnin ENHANCE
(Enhancing risk management partnerships for catastrophic
...upp í vindinn I 7