Upp í vindinn - 01.05.2014, Síða 12
HJÓLASTÍGUR FRÁ FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR TIL REYKJAVÍKUR
ákjósanlegrar hjólaleiðar (rautt). Notaðar voru eins metra
hæðarlínur til að teikna upp hæðarsniðin. Sniðin ná frá Flugstöð
Leifs Eiríkssonar að Straumsvík í Hafnarfirði. Ákveðið var að
skoða hæðarsnið innan höfuðborgarsvæðisins ekkert frekar. Á
grafinu sést að hjólaleiðin er um 4 km lengri en Reykjanesbrautin
þegar komið er að Straumi í Hafnarfirði.
Yfir heildina litið tekur hæðarsnið fyrir ákjósanlega hjólaleið
minni breytingum en hæðarsnið Reykjanesbrautar. Töluverð
hækkun er á hjólaleiðinni á milli Reykjanesbæjar og Voga
(staðsetning á tólfta til fjórtánda km leiðarinnar) en þá hækkar
hjólaleiðin um 30 metra á um 1,5 km sem nemur um 2% halla
að meðaltali. Hjólaleiðin liggur svo meðfram Vatnsleysuströnd
en Reykjanesbraut liggur lengra inn í landi yfir Strandarheiði
og þvi kemur ekki á óvart að hjólaleiðin liggur lægra á þeim
kafla en Reykjanesbrautin. Á þessum kafla er hækkun á
Reykjanesbrautinni um 32 metrum meiri en á hjólaleiðinni á um
7 km löngum kafla. Þó svo að einn hár toppur sé á hæðarsniði
hjólaleiðarinnar þá eru langir kaflar leiðarinnar á jafnsléttu. Þó
að hæsti hluti Reykjanesbrautarinnar liggi um 20 m neðar en
hæsti punktur hjólaleiðarinnar þá eru jafnsléttir kaflar stuttir. En
samanlögð hækkun á hvorri leið fyrir sig er nánast sú sama.
Kostnaðarmat
Ljóst er að kostnaður við þessa hjólaleið ræðst af því hvaða
kröfur eru settar um gæði hjólaleiðarinnar, s.s. kröfur um gæði
undirlags, gæði yfirborðs, aðskilnað við umferð, breidd stíga,
merkinga og frágangs meðfram stlgum. Efst I forgangsröðinni
er að sjá til þess að hjólaleið frá Reykjanesbæ að Reykjavík sé
samfelld þannig að hægt sé að komast hjólandi þar á milli. Til
þess þarf að leggja stíga þar sem engin umferðarmannvirki eru
til staðar. Til að hjólaleiðin sé fær fyrir götuhjól þarf að koma
fyrir sléttu yfirborði á malarvegina. Mikilvægt er að það vefjist
ekki fyrir hjólreiðafólki hvar hjólaleiðin liggur en það er gert
með notkun á skiltum og yfirborðsmerkingum. Merkingar stuðla
einnig að því að hjólreiðafólk verði sýnilegra í umferðinni sem
getur aukið öryggi og vakið athygli á hjólreiðum í samfélaginu.
Eftir að samfelld vel merkt hjólaleið hefur verið lögð er hægt
að betrumbæta hjólaleiðina þar sem við á, s.s. með aðskilnaði
hjólandi við bílaumferð eftir Vatnsleysustrandarvegi, leggja
tengistíga að Bláa lóninu og Ásbrú og annað þess háttar.
Kostnaðarmatið er byggt á sundurliðuðum magntölum og
einingaverðum þar sem reiknað er með 12% álagi vegna
undirbúnings framkvæmda. Hönnun og umsjón er bætt við
sem 12% og ófyrirséður kostnaður 15%. Kostnaður við þessar
framkvæmdir er áætlaður um 330 millj. kr. en mikið fé sparast
við að nota gamla Keflavíkurveginn sem undirlag hjólastígs.
Þar sem kostnaður við uppbyggða stíga þar sem skipta þarf út
jarðvegi er tvöfalt til þrefalt meiri en i þeim tilvikum þar sem ekki
þarf að skipta út jarðvegi.
Stærstur hluti ákjósanlegrar hjólaleiðar er á malbikuðum götum
eða um 23 km. Á þessum götum verður þá blönduð umferð
ökutækja og reiðhjóla en sjá þarf til þess að tekið sé tillit til
umferðar hjólandi. Mismunandi yfirborðsmerkingar geta verið
notaðar til að auka sýnileika hjólreiðafólks. Merkingarnar verða
til þess að augljóst er hvar samfelld hjólaleið liggur ásamt því að
minna ökumenn á umferð hjólandi. Ef hjólavísar eru notaðir á
malbikuðum götum á leiðinni væri kostnaður vegna þeirra um 15
millj. kr. Kostnaður vegna hjólareina væri um 30 millj. kr.
Um 16 km leiðarinnar liggja eftir malarvegum. Á þessum hluta
leiðarinnar þarf að leggja slétt yfirborð sem hentar til hjólreiða.
Malarvegirnir geta nýst sem undirlag fyrir malbikaða stíga þar
sem einungis þyrfti að leggja jöfnunarlag undir malbik. Nóg er
að jöfnunarlagið sé 50 mm ef malarvegurinn er sléttur en þarf að
vera þykkara þar sem jafna þarf ósléttur. Hér verður því reiknað
með 100 mm jöfnunarlagi.
Það þarf að leggja um 4 km af nýjum stígum frá grunni svo að
hjólaleið milli Reykjanesbæjar og Reykjavíkur verði samfelld.
Frá mislægum gatnamótum við Hvassahraun þarf að leggja 1,5
km langan stíg í gegnum hraun sunnan við Reykjanesbraut að
gamla Keflavíkurveginum nær Hafnarfirði. Á þessum hluta hefur
Reykjanesbrautin verið lögð ofan á gamla Keflavíkurveginn.
Hér þarf jarðýta að ryðja leið I gegnum hraunið en reiknað er
með að rudda hraunið sé notað í fyllingu en líklegt er að bæta
þurfi einhverju efni við fyllinguna. 50 mm jöfnunarlag er lagt
ofan á fyllinguna og kaldblandað 100% endurunnið malbik er
lagt þar á eftir. Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar liggur enginn
stígur um 1,5 km leið að hringtorgi nær Reykjanesbæ. Isavia
og Reykjanesbær hafa verið í viðræðum um að leggja hjólastíg
milli Reykjanesbæjar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar svo að
starfsmenn Isavia geti hjólað til og frá vinnu. Það er því hugsanlegt
að þessi hluti hjólaleiðarinnar verði lagður von bráðar. Hér þarf
að jarðvegsskipta og er reiknað með 600 mm fyllingu, 50 mm
jöfnunarlagi og 50 mm lagi af kaldblönduðu endurunnu malbiki.
Meðfram álverinu vantar stíg á um 1 km kafla ef hjólað er norðan
Reykjanesbrautar. Hér er stígurinn uppbyggður á sama hátt og
stígur frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Endurunnið malbik
Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas (MHC) framleiðir kaldblandað
malbik úr 100% endurunnu malbiki. MHC safnar malbiksúrgangi
úr eigin framleiðslu, gömlu upprifnu malbiki og fræstu malbiki
af götum. Hluta af þessu efni er bætt út í heitblandað malbik
en vegna þess hve mikið af þessu efni fellur til er leitað nýrra
leiða við nýtingu þess. Efninu er nú
kaldblandað við 3,5% bikþeytu af
þyngd í stöð. Prófanir hafa gefist vel og
þykir kaldblandað 100% endurunnið
malbik henta vel á umferðarminni
vegi og göngustíga. Leggja þarf
malbikið út snemma sumars því það
þarf góða sumardaga til þess að hita
upp malbikið og leyfa því að taka
sig. Haustið 2012 voru göngustígar
í Grindavík og hluti Krýsuvíkurvegs
malbikaður með kaldblönduðu 100%
endurunnu malbiki [15]. Malbikið hefur
12 I ...upp í vindinn