Upp í vindinn - 01.05.2014, Blaðsíða 17
LYFTUR SEM HLUTI AF FLÓTTALEI
um það að segja. Þar sem stígahúsin
eru fyrst og fremst hugsuð og notuð sem
flóttaleið og eru jafnvel ekki á sama stað í
byggingunni og lyfturnar er einnig hætta á
því að fólk þekki ekki leiðina þegar kemur
að því að nota stigann.
Lyftur við eldsvoða
En nú að lyftum í tengslum við rýmingar
og eldsvoða. Á íslandi eru enn ekki neinar
fólksflutningslyftur sem ætlaðar eru til
almennrar rýmingar við brunaboð þó svo
að regluverkið bjóði upp á það. í 9.8.6.
grein Byggingar-reglugerðar [2] stendur:
„Brunavarnalyftur og flóttalyftur skal
nota þar sem slíkt er nauðsynlegt vegna
slökkvi- og björgunarstarfa eða öryggis
fólks.“ Auk þess er kvöð í sömu grein um
brunavarnalyftu í byggingum sem eru átta
hæðir eða hærri. Þetta er lyfta sem ætluð
er slökkviliði til notkunar við slökkvistarf og
fólksbjörgun og skal hún vera í lyftustokk
sem er sjálfstætt brunahólf, með
brunastúku á hverri hæð og hafa minnst
tvo óháða straumgjafa og er hönnuð skv.
ÍST EN 81-72 [3]. Slökkviliðslyfta skiptir
miklu máli við slökkvistörf í háhýsum
eins og prófanir EFLU og Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins leiddu í Ijós [4] [5].
Yfir 30 ár eru síðan vinna hófst með
hugmyndir um að nota lyftur við rýmingu
og var það fyrst og fremst til þess að
tryggja rýmingarmöguleika fatlaðra sem
þessi vinna hófst og gaf Bandaríska
Staðlaráðið út skýrslu árið 1982 um
viðfangsefnið [6]. Þessi vinna hefur
í raun verið í gangi síðan, í ýmsum
löndum, og er sífellt verið að þróa betri
lausnir á tæknivandamálunum sem fylgja
því að nota lyftur við rýmingar. Til að
mynda hefur verið gefin út handbók um
flóttalyftur í Ástralíu [7].
Það væri stórt skref í átt að auknu
jafnrétti og öryggi fyrir fólk með skerta
hreyfigetu ef almenn rýming færi m.a.
fram með notkun lyfta. Þá getur fólk sem
bundið er við hjólastól eða á erfitt með
gang rýmt bygginguna hjálparlaust eða
-lítið, í stað þess að bíða á svokölluðum
öruggum svæðum eftir aðstoð eða að
hættan gangi yfir. Þessi öruggu svæði
hafa oft mætt afgangi við hönnun og gerð
bygginga en með auknum áherslum á
algilda hönnun hafa málefni sem varða
aðgengi og öryggi fatlaðra fengið meira
vægi. Fjallað er nánar um rýmingarmál
við algilda hönnun í greininni „Frágengi
fyrir alla“ [8]. Einnig má nefna að börn
eiga erfitt með rýmingu um stiga og þurfa
þau mikla aðstoð fullorðinna, auk þess
sem rýming barna um stiga er seinleg [9].
Þegar skýrslur og greinar um rýmingu
með lyftu eru skoðaðar er Ijóst að áhersla
er lögð á að leysa þurfi tæknilegu hliðar
málsins sem snúa að því að tryggja að
lyftan sé áreiðanleg [10], hafi afl og sé
reyklaus [6] [7]. Þessir tveir þættir eru nú
þegar skilgreindir í íslensku reglugerðinni
þar sem aflið á að vera tryggt með því
að hafa a.m.k. tvo óháða straumgjafa
og reykhömlun á að vera tryggð með
því að hafa lyftuhúsið í sér brunahólfi og
með stúku á hverri hæð. Auk þess þykir
Ijóst að það getur verið flókið að hanna
skilvirka stýringu sem tryggir að lyftan
stoppi á réttum stöðum o.s.frv.
Mannlegi þátturinn
Þáttur sem gjarnan hefur gleymst er
mannlegi þátturinn. í áratugi hefur fólki
verið kennt að nota ekki lyftur í eldsvoða
heldur stigana. Yfirleitt eru viðvaranir
þess efnis í lyftum og við lyftudyr á hverri
hæð. Flvernig á að sannfæra fólk um að
lyftur séu góður kostur í rýmingu? Það er
því miður ekki svo einfalt að einn daginn
sé óhætt að nota allar lyftur við rýmingu
heldur þarf að greina á milli hvaða lyftur
má nota og hverjar má ekki nota.
Rannsókn leiddi í Ijós að það sem
veldur fólki mestum ótta þegar
kemur að rýmingu með lyftu eru
eftirfarandi þættir [11]:
• Lyftan verði
straumlaus
• Lyftan stoppi
• Reykur berist inn í
lyftuna
• Biðtími eftir lyftunni
verði of langur
Engan af þessum þáttum getur fólkið
sjálft haft áhrif á og er því Ijóst að fólki
finnst óþægilegt að missa vald á sínum
eigin örlögum. Kosturinn við það að nota
stigann er að þú sérð hvernig þér miðar
áfram og getur skipt um skoðun/stefnu
nánast hvenær sem er.
Óttinn um að biðtíminn sé of langur
tengist því að fólk er hrætt við að
bíða eftir lyftu upp á von og óvon um
að hún komi og að aðrar flóttaleiðir
geti lokast á meðan. Þess vegna er
hönnun byggingarinnar mikilvæg og því
ákjósanlegast að stigahúsið sé á sömu
slóðum og lyftubiðsvæðið og því hægt
að skipta um skoðun án þess að fara um
hugsanlega reykfyllt svæði [7].
Annar þáttur sem getur haft áhrif á val
fólks milli lyftu og stiga er hvað fólk telur
vera fljótasta kostinn við rýmingu. Þannig
getur hæð bygginga haft áhrif á hversu
margir velja að nota lyftu sem flóttaleið.
Rannsókn (skoðanakönnun) sýndi að um
25% gætu hugsað sér að nota lyftu á 20.
hæð, en 70% fólks á 60. hæð byggingar
[12]. Þegar fólk var spurt hvort það gæti
hugsað sér að bíða eftir lyftu í rýmingu,
máttí sjá beina tengingu við það á hvaða
hæð það var statt, því hærra uppi því meiri
líkur voru á að fólk væri tilbúið að bíða.
Þegar sama fólk var beðið um að svara
því hvort það myndi skipta um skoðun ef
það væru fáir að bíða á lyftusvæðinu hafði
hæðin einnig áhrif. Fólk á lægri hæðum
skipti frekar um skoðun, enda um styttri
gönguleiðir að ræða og ekki eins mikill
ávinningur af því að nota lyftu. Hins vegar
var ekki hægt að sjá sama mynstur þegar
fólki var sagt að margir væru að bíða á
lyftusvæðinu, þá sögðust u.þ.b. 85-90 %
skipta um skoðun og nota frekar stigann,
óháð hæð [13].
Upplýsingamiðlun
Lykilatriði í því að fá fólk til að
velja að nota til þess gerðar lyftur
við rýmingu er upplýsingamiðlun.
Ýmsar leiðir eru til þess að koma
nauðsynlegum skilaboðum til
væntanlegra notenda og má helst
nefna [11]:
• Þjálfað starfsfólk
• Töluð skilaboð
• Merkingar
• Gaumljós um hvort
lyftan sé virk
• Raunstaðsetningu lyftu
• Stafræn
upplýsingaskilti
Miklir möguleikar eru í notkun stafrænna
skilta, t.a.m. að birta áætlaðan biðtíma
eða hvar tiltekin hæð er í rýmingarröðinni,
enda þekkja flestir slík kerfi frá hinum
ýmsu þjónustuverum.
...upp í vindinn I 17