Upp í vindinn - 01.05.2014, Síða 18

Upp í vindinn - 01.05.2014, Síða 18
LYFTUR SEM HLUTI AF FLÓTTALEI Þrátt fyrir að lyftur hafi ekki verið hannaðar sem flóttaleið og þrátt fyrir herferðina um að ekki skuli nota lyftur í rýmingu eru fjölmörg dæmi um að lyftur hafi verið notaðar sem flóttaleið við bruna. Þetta gerðist t.d. þegar eldur kom upp í 20 hæða íbúðabyggingu í Hiroshima árið 1996 [14] en þekktasta dæmi seinni tíma er eflaust við rýmingu tvíburaturnanna í New York árið 2001 [15]. Þess ber þó að geta að einnig eru skjalfest dæmi um að fólk hafi fundist látið f lyftum eftir eldsvoða, til að mynda fundust fimm fórnarlömb í lyftum eftir þekktan bruna í bandarísku spilavíti og hóteli árið 1980 [16]. Rýmingartími Til þess að reikna flóttatíma þarf að nota sérhæfðan hugbúnað. Rýmingartíminn er enn fremur háður hönnun og stærð byggingarinnar, fjölda og stærð lyfta, stýringum á lyftunum og hversu margir bíða lyftu á mismunandi hæðum. Rannsóknir sýna að yfir ákveðinni hæð eykst hagkvæmni þess að nota lyftur sem flóttaleið og að almennt næst besti flóttatíminn með því að samnýta stiga og lyftur við rýmingu. í bandarískri rannsókn [17] þar sem borinn var saman rýmingartfmi þriggja tilfella (allir notuðu stiga, allir notuðu lyftur eða samnýtingu hvoru tveggja) í fjórum byggingum leiddi í Ijós að fyrir sjö hæða bygginguna tók nánast sama tíma að rýma þegar allir notuðu stiga og þegar lyfta var notuð til móts við stigann. Rýmingartiminn meira en tvöfaldaðist við það að allir notuðu lyftu. Niðurstöðurnar fyrir næstu byggingu, sem var þrettán hæðir, sýndu að hagkvæmast var að nota bæði lyftur og stiga og eftir því sem byggingarnar voru hærri jókst ávinningur þess að nota lyftur. Forgangsröðun Eins og hefur verið nefnt var upphaflega hugmyndafræðin á bak við flóttalyftur að tryggja frágengi fatlaðra. Með tiikomu sífellt hærri bygginga er þörfin á lyftunum ekki sfður til að flýta fyrir almennri rýmingu og vaknar því spurningin: hver á forgang? Er það aðilinn sem situr í hjólastólnum eða með hækjurnar eða astmann eða einfaldlega sá sem kom fyrst í röðina? Þetta hefur einnig verið viðfangsefni vinnuhópa [18] en við þessu er ekkert eitt rétt svar enda rök með og á móti flestum sjónarmiðum. Lokaorð Með notkun lyfta við rýmingu er Ijóst að bæta má rýmingu fyrir alla hópa samfélagsins, sé hún rétt skipulögð og framkvæmd. í mörgum tilfellum má einnig stytta rýmingartíma, því hærri bygging þeim mun meiri ávinningur. Lausnir þar sem lyftur eru hluti af almennri flóttaleið þarfnast þó ítarlegrar brunahönnunar, áhættugreiningar og næmnigreiningar. Ljóst er að tækninni fleygir fram og reynsla er þegar komin á notkun lyfta og mun þróunin vafalaust halda áfram á þessu sviði. Myndir þú nota lyftu til rýmingar? Emergency evacuation lift Mynd 1 Dæmi um --------------------- merkingu flóttaleiðar að Mynd 2 Dæmi um flóttalyftu merkingu flóttalyftu ■■■* Ég myndi hætta við að nota lyftuna ef það væru fáir að bíða (0,5 pers/m2) ■■■ Ég myndi hætta við að nota lyftuna ef það væru mjög margir að bíða (2,5 pers/m2+) ■■©■•Ég myndi hugsanlega bíða eftir lyftu við rýmingu 100 2-10 11-20 21-30 31-40 41-50 51-60 Hæð byggingar sem viðkomandi er staddur á Mynd 3 Líkur á því að fólk sé tilbúið til þess að bíða eftir lyftu við rýmingu, eftir hæð sem fólk er statt á. Einnig eru sýndar líkur á því að sama fólk skipti um skoðun eftir því hvort fáir eða margir eru að bíða á lyftusvæðinu [13]. 18 I ...upp i vindinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Upp í vindinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.