Upp í vindinn - 01.05.2014, Side 24
SETMYNDUN í HAGALÓNI
Ef miðað er við að lón við Urriðafoss verði alltaf minna en
Sultartangalón má ætla að allur sandur sem berst í lónið sem
svifaur setjist til í lóninu. Erfiðara er að segja til um móhlutann.
Ef mest af þeim kornum sem berast að Urriðafossi og flokkast
sem mór eru almennt í neðri skalanum á móskilgreiningunni þá
eru allar líkur á að um sé að ræða korn sem komust í gegnum
Sultartangalón og því eðlilegt að ætla að þau setjist ekki til í
lóni við Urriðafoss. Ef aftur á móti þessi korn eru almennt í efri
skalanum á móskilgreiningunni þá eru allar líkur á að þetta séu
korn sem áin hefur rofið neðan Búrfells og þá geta þau sest til í
lóni við Urriðafoss. Þegar þessi greinargerð var skrifuð var ekki
búið að ráðast í greiningu efna á eyrunum og því ákveðið að
miða við að allur mór settist til (öruggara að ofmeta heldur en
vanmeta setmyndunina). Skýrslan frá 2006 styður þetta þar sem
kornakúrfur á áreyrum sýna að almennt er undir 10 % efnisins
undir 0,2 mm (mörk sands og móflokksins) og á efstu eyrunum
innan við 2,5 % minna en 0,06 mm.
Byggt á þessum forsendum voru aurburðarlyklar gerðir
fyrir svifaursflokkana mó og sand sem og botnskriðið og
niðurstöðurnar gáfu að setmyndun í lón við Urriðafoss gæti
numið um 0,67 milljón tonnum af svifaurssandi á ári, 0,14 af mó
og um 0,26 milljón tonnum á ári af botnskriði eða alls um 1,07
milljón tonnum á ári eða 0,75 Gl/ári ef miðað er við 1400-1600
kg/m1 2 3 4 rúmþyngd.
Þessar niðurstöður gefa ekki upplýsingar um hvar áin tekur
upp efni á leið sinni og því segir þetta ekkert til um hugsanlega
setmyndun í Hagalóni, nema þá að hún sé minni en sem þessu
nemur. Auk þess gefur þetta ekki fulla mynd af því hve mikið mun
setjast til í Heiðarlóni ef allar þrjár virkjanirnar verða að veruleika
því óvíst er hvort áin nái upp jafn miklu efni þegar efnisuppsprettur
hennar minnka. Því var ráðist í frekari rannsóknarvinnu sem lauk
með skýrslu 2006.
Byggt var á þeim niðurstöðum sem greining mælinga hafði gefið
og tveimur nýjum aðferðum bætt við. Þær eru massavarðveisla
og skoðun á rofkrafti árinnar og jarðfræðilegar skorður.
Miðað var við að aur sem setjast myndi til
í lóni af sömu stærðargráðu og Hagalón
staðsettu við Urriðafoss (hér eftir kallað
ímyndaða lónið), væri uppruninn:
1. úr farvegi og bökkum árinnar á milli Urriðafoss
annars vegar og Bjarnalóns og Sultartangalóns
hins vegar (reyndar einnig ofar af svæðinu fyrir
gerð Sultartangalóns)
2. frá landsvæðunum við þennan sama árkafla
þaðan sem efni getur borist með vindi eða vatni (í
venjulegri úrkomu og í leysingum)
3. frá þverám Þjórsár sem sameinast ánni á þessum
kafla
Auk þess geta náttúruhamfarir átt hlut að máli og
má þá bæta við
4. lausum gosefnum frá eldgosum
Fyrir massavarðveisluaðferðina var lagt mat á aurburð við
Urriðafoss yfir lengri tíma. Magnið var endurmetið miðað við
nýjar aurburðarmælingar (nú 0,87-1,09 milljón tonn á ári). Síðan
var byggt á lögmálinu um varðveislu massa, þ.e. að það efni
sem áætlað er að hafi borist framhjá Urriðafossi yfir ákveðinn
tíma hlýtur að hafa komið einhvers staðar frá. Árið 1970, þegar
Búrfellsvirkjun var komin í notkun, var valið sem upphafstími og
2003 sem lokatími.
Til að leggja mat á massann sem áin gæti
hafað rofið með sér af umræddu svæði á
umræddu tímabili var ýmsum brögðum beitt.
Hér eru nokkur talin upp:
• Eldri loftmyndir og kort, helst frá um það bil 1970 og
nýlegar loftmyndir og kort voru notuð til að leggja
mat á hvaðan efnið gæti hafa komið.
• Til voru mælingar á áreyrunum neðan við Búrfell
frá 1965 sem teknar voru vegna mælinga á stærð
Búrfellshrannar. Þessar mælingar komu sér vel og
nýjar voru gerðar haustið 2003.
• Langhallamælingar voru einnig til frá 1951 og 1995.
Bætt var við mælingum 2003.
• Þversniðs- og straumhraðamælingar voru gerðar
auk þess sem grafnar voru upp gamlar mælingar.
M.a. komu í Ijós mælingar af Fossá neðan
frárennslisskurðar Búrfellsvirkjunar.
• Mat lagt á uppdælingu sets úr Bjarnalóni.
• Vettvangsferðir farnar. í einni slíkri sást að ekki
mátti vanmeta rof úr Bjarnalæk en rennsli hans fór
úr því að vera smá lækur í það að taka við um 20
m3/s vegna ísskolunar, sjá mynd 5.
• Spáð í sandfok og eldgos, sjá merki sandfoks á
mynd 6.
Mynd 5 Úr skýrslunni um setmyndun í Hagalóni. Rof í
Bjarnalæk, horft niður og yfir farveginn. Hæðarlínur á korti sýna
að rofabörðin í hliðum Búrfells eru á bilinu 10-15 m að hæð.
Breidd farvegarins er einnig merkt inn á myndina.
24 I ...upp í vindinn