Upp í vindinn - 01.05.2014, Side 38
OLHONNUN VEGA
Mynd 2 Þungi bílhermirinn HVS Nordic staðsettur í VTI Svíþjóð.
óbundnu efra og neðra burðarlagi sem hvílir á syltkenndum
sandi. í prófinu voru meira en 1,1 milljón yfirferðir farnar með
tvöföldu hjólaálagi, 800kPa dekkjaþrýstingi og 120kN öxulþunga.
í fyrri hluta prófsins var grunnvatnsstaðan á miklu dýpi en eftir
tæplega 487 þúsund yfirferðir var vatnsstöðunni breytt þar
til grunnvatnsstaðan var 30 cm fyrir neðan efri brún undirlags
(mynd 3), en í þeirri stöðu ætti að vera til staðar afrennsliskerfi
og því versta mögulega staða grunnvatns. Á þennan hátt var
hægt að meta áhrif breytts rakainnihalds á einstök lög sem og
vegbygginguna í heild (Wiman, 2010).
vegbyggingin var í röku ástandi (vinstra megin) og síðan i
blautu ástandi (hægra megin) eftir að grunnvatnsstaðan hafði
verið hækkuð. Lóðréttu línurnar sýna mælda meðaltalsstreitu á
meðan brotalínurnar sýna reiknaða streitu sem fengin var með
forritinu ERAPAVE (Erlingsson & Ahmed, 2013). Á myndinni
má greinilega sjá hvernig lóðrétta streitan eykst í öllum lögum
vegbyggingarinnar eftir að raki hennar jókst (hægra megin),
það sama á við um togstreitu í neðri brún bikbundna lagsins,
en lóðréttu spennurnar minnkuðu. Þetta bendir til þess að stífni
vegbyggingarinnar minnki með auknu rakainnihaldi.
Þegar svörun vegbyggingarinnar var reiknuð voru bikbundnu
lögin sem og undirlagið meðhöndlað sem línulegt efni en efra
og neðra burðarlagið var spennuháð. Notuð var svokölluð
greining marglaga kerfa (e. Multi Layer Elastic Theory - MLET)
þegar verið var að reikna svörun vegbyggingarinnar en til að
reikna hjólfaramyndun var líkan þróað af Korkiala-Tanttu (2009)
notað. Saevarsdottir og Erlingsson (2013) hafa áður lýst þessari
aðferðafræði.
Á mynd 4 má sjá lóðréttu streituna sem fall af dýpi þegar
Á mynd 5 má sjá mælda og reiknaða hjólfaramyndun einstakra
laga vegarins sem og vegbyggingarinnar í heild. Á myndinni má
greinilega sjá að aukið vatn í vegbyggingunni hefur gríðarleg
áhrif á uppsafnaða hjólfaramyndun. Aukningin í niðurbeygju er
mest i undirlaginu þar sem mesta aukningin í rakainnihaldi er.
Lag Þykkt [cmj Lýsing Stærsta kornastærð, <4„[mm] Fínefna- hlutfall [%] Kjörrakastig (gravimetric) [%]
AC malbiks- slitlag 3,3 AC pen 70/100 16 - -
BB bikbundið burðarlag 7,4 AC pen 160/220 32 - -
BC efra burðarlag 8,8 Óbundið brotið berg (granit) 32 ~ 6 4-5
Sb neðra burðarlag 45 Óbundið brotið berg (granít) 90 ~ 3 4-5
Sg undirlag' -235 Fínkorna siltkenndur sandur 4 25 13
yfir 90% af kornunum voru minni en 0,5mm
t
rMU coils - vcrtical strain
I—1 SPC - prcssurc ccll
LVDT's - vertical dcflcction
r7 Ground water tablc aftcr
V 486,750/487,500 passings
(gl ASG - horizontal strain:
longitudinal & transvcrsa!
Moisturc contcnt scnsors
Mynd 3 Þverskurðarmynd af vegbyggingunni SE10, ásamt innsettum nemum. Vegbyggingin samanstóð af malbikslagi, bikbundnu
burðarlagi, efra og neðra óbundnu burðarlagi og undirlagi.
38 I ...upp í vindinn