Upp í vindinn - 01.05.2014, Side 43
KÚVENDING í SKIPULAGSMÁLUM
Önnur ofuráhersla skipulagsins 1962-
1983 var á náttúruleg búsetuskilyrði. Þar
var lagt til að setja niður íbúðahverfi þar
sem aðstæður væru heppilegar út frá
útsýni, birtu og skjóli, jafnvel þó það fæli í
sér fjarlægð á milli hverfa. Lagst var gegn
háhýsum en í stað þess var markmiðið
að reyna að tryggja sem flestum sérbýli
á 1-2 hæðum með eigin garði. Ef það
ætti að velja eitthvert aðalsmerki fyrir
skipulagið 1962 væri það án efa neðra
Breiðholt eða Árbæjarhverfið þar sem
lengjur af raðhúsum og samsíða einbýli
áttu að mynda skjóllínur og gefa íbúum
færi á því að njóta skjóls og sólskins en
Fossvogsdalurinn er einnig skipulagður
með þessar hugmyndir í huga.
Svo má segja að helsta markmið
skipulagsins 1962-1983 hafi náðst -
miðbærinn hélt stöðu sinni nokkuð
óskertri út skipulagstímann sem
miðstöð höfuðborgarsvæðisins. Eftir
það komu aðrar miðjur; Kringlan árið
1987 og Smáralind 2001 enda hafði
þyngdarpunktur höfuðborgarsvæðisins
hliðrast verulega til með útþenslu
byggðarinnar og nýjum hverfum utar í
borgarlandinu og í kragasveitarfélögum.
Einnig má segja að annað markmið
skipulagsins, að sem flestir borgarbúar
næðu að setjast að í einbýli og raðhúsum
á móti sól, hafi einnig gengið dável eftir.
Hins vegar voru þessi markmið ekki
kostnaðarlaus.
Helsta gagnrýnin á skipulagið frá 1967
hlýtur að vera sú að farið var með land eins
og ótakmarkaða auðlind sem bæði dreifð
og götótt byggð innan borgarlandsins ber
vitni um. Einnig hafa ýmis hugtök líkt og
„einkabílismi" og „úthverfavæðing" verið
notuð til þess að lýsa þeirri miklu umferð
sem einkennir Reykjavík þar sem borgin
teygir sig yfir ákaflega stórt svæði þrátt
fyrir lítinn íbúafjölda og borgarbúar þurfa
ávallt að fara miklar vegalengdir til þess
að sinna erindum sínum. Eftir því sem
bílum hefur fjölgað og umferðarálag
aukist hefur draumur Dananna tveggja
að fólk geti valið sér búsetu hvar sem
er á höfuðborgarsvæðinu og samt
notið þeirrar fjölbreytni og úrvals sem
borgin hefur upp á að bjóða snúist upp
í andhverfu sína og æ erfiðara verður að
yfirstíga fjarlægðir.
Það er því ekki að undra að nú
hálfri öld síðar sé stefnunni kúvent í
skipulagsmálum, og áherslan færð
á vistvænar samgöngur og þéttingu
byggðar, sem má líta á sem kall á nýja
tíma. Hér verður farið örstutt yfir helstu
markmið hins nýja skipulags og reynt að
meta áhrif skipulagsins.
Fyrsta áhersla: Þétting byggðar
Nýtt skipulag gerir ráð fyrir því að 90%
nýrra íbúða á næstu 20 árum verði
byggðar innan núverandi byggðamarka.
Það er flestum Ijóst að byggð innan
Reykjavíkur er of dreifð og töluverð þétting
er möguleg með tiltölulega hægum hætti.
Það er ekki aðeins að skilin hafa verið
eftir ýmis göt í byggðinni á milli hverfa
heldur hafa mörg bestu búsetusvæðin
við norðurstrandlengju borgarinnar
verið tekin frá fyrir landfreka, og jafnvel
mjög mengandi, iðnaðarstarfsemi.
Þétting byggðar mun skila töluverðum
fjárhagslegum ávinningi fyrir fjárhirslur
borgarinnar. Allir innviðir eru að mestu
til staðar á þéttingarsvæðunum og
kostnaöur við uppbyggingu er því á
reikning lóðahafa. Fleiri íbúar og þéttari
byggð skilar meiri hagkvæmni í ýmis
konar almenningsþjónustu auk þess að
skila beinhörðum peningum með auknum
útsvarstekjum og fasteignagjöldum, og
það kostnaðarlítið fyrir borgina.
Þétting byggðar er einnig í samræmi
við aukna ásókn fólks til þess að búa
nær miðju borgarinnar til þess að eiga
hægar með að sækja vinnu, þjónustu eða
menningu. Að sama skapi hafa auknir
möguleikar til fasteignafjármögnunar gert
fólki auðveldar fyrir að kaupa húsnæði
nær miðju. Hægt er að orða það svo að
búsetuvalið standi á milli þess að „kaupa
eða keyra“ - það er kaupa tiltölulega dýrt
húsnæði miðsvæðis og greiða hærra
fermetraverð vegna nálægðarinnar eða
keyra langar vegalengdir frá ytri mörkum
borgarinnar þar sem fermetraverð er
lægra.
'Reykjavík
■Kragasveitarfélög
Landsbyggðin
iDfNOO^OtDNOOtOlDNOOtOlí)
Mynd 1 Fjöldi fólks eftir aldri í Reykjavík, kragasveitarfélögum og landsbyggð árið 2010
Heimild: Hagstofa íslands og útreikningar höfundar
Mynd 2 Vöxtur höfuðborgarsvæðisins á hverjum áratug frá 1910 til 2010
Heimild: Hagstofa íslands
...upp í vindinn I 43