Upp í vindinn - 01.05.2014, Side 51
SAMSETNING SVIFRYKS í REYKJAVÍK
Mynd 1 Ársmeðaltalsstyrkur svifryks við Grensásveg og í Húsdýragarðinum. Árið 2001
féllu mælingar niður.
rannsókn var gerð árið 2003 hafa miklar
breytingar átt sér stað sem geta haft áhrif
á svifryksmyndun. Notkun nagladekkja
hefur t.d. minnkað töluvert eða frá 67%
allra bifreiða á nagladekkjum niður i 38%.
Breytingar hafa orðið á malbikstegundum
og malbikunaraðferðum sem hefur aftur
áhrif á slitþol malbiksins og um leið magn
og gerð svifryks frá malbikinu. Samdráttur
hefur orðið í byggingarframkvæmdum
og jarðvinnu en hvoru tveggja
eru framkvæmdir sem geta valdið
svifryksmengun. Tvö eldgos hafa átt sér
stað í millitíðinni með mikilli öskumyndun
sem bæst hefur við aðra svifryksmengun f
borginni. Fjöldi bifreiða í umferðinni hefur
aukist og hlutfall díselbíla hefur aukist.
Framkvæmd og aðferðarfræði
Ekkiertilneinaðferðsemmælirbeintmagn
einstakra upprunaefna. Uppspretturnar
eru margar og innihalda mikið til
sömu frumefnin en þó í mismunandi
hlutföllum sem hægt er að nýta sér m.a.
við greininguna. Til að greina hlutfall
einstakra upprunaefna í svifrykinu hefur
verið þróuð aðferðarfræði þar sem beitt er
tölfræðilegri fjölbreytugreiningu. f upphafi
var svifrykssýnum safnað á glertrefjasíur
með sérstökum svifrykssafnara (Thermo
Scientific Partisol-Plus 2025). Hver
sía var vigtuð með greiningarvog með
nákvæmni upp á 0,01 mg. Því næst voru
sýnin greind með því að mæla endurvarp
Ijóss af sýnunum á sýnilegu og nær-
innrauðu bylgjusviði (Near Infrared and
Visible region, Foss 6500 nirsystems).
Að því loknu voru sýnin leyst upp í
saltpéturssýru og vetnisperoxíði með hitun
í örbylgjuofni undir þrýstingi. Uþpleystu
sýnin voru síðan frumefnagreind með
rafgasljósgreiningu (ICP-OES, Jobin
Yvon Ultima 2) þar sem mæld voru
frumefnin Ca, Mg, K, Na, P, S, Al, Si,
Mynd 2 Samsetning
svifryks vetur 2013
Ba, Sr, Ti, Cr, Co, W og Zr. Útbúin voru
upprunasýni frá helstu uppsprettum sem
taldar eru valda mestri svifryksmengun;
jarðvegur, götusalt, bremsuborðar,
malbik, sót og eldfjallaaska.
Upprunasýnin voru meðhöndluð á
sama máta og svifrykssýnin, þ.e. hverju
einstöku upprunasýni var safnað á
samskonar glertrefjasíur og hvert sýni
greint á sama hátt og svifrykssýnin.
Niðurstöður efnagreininganna og
Ijósgleypnimælinganna voru sett í sérstakt
reiknimódel þar sem beitt var tölfræðilegri
fjölbreytugreiningu við magngreiningu
einstakra upprunaefna. Aðferðafræðin
og reiknilíkanið var þróað af Arngrími
Thorlacius hjá Landbúnaðarháskóla
íslands og sá hann um efnagreiningar og
útreikninga.
Niðurstöður
Sýnatakan fór fram við gatnamót
Miklubrautar og Grensásvegar en það
er sá staður sem búast má við hvað
mestri svifryksmengun í Reykjavík. Tekin
voru sýni yfir þriggja mánaða tímabil, frá
byrjun febrúar til lok apríl 2013. Skoðaðir
voru sérstaklega þeir dagar þar sem
Mynd 3 Samsetning vetrarsýna
skv. rannsókn frá 2003
svifryksmengun var í hámarki og reiknað
út meðaltalshlutfall upprunaefna í þeim
sýnum.
Hafa verður í huga að niðurstöður
mælinganna takmarkast við þau sýni
og það tímabil sem sýnatakan stóð yfir,
þ.e. þegar svifryksmengun er mikil á
vetrartíma. Ljóst er að ýmsir ytri þættir
geta haft áhrif á magn og samsetningu
svifryksins. Vænta má að niðurstöður
verði aðrar fyrir daga með minni eða meiri
svifryksmengun og að sumarlagi [4].
Veðuraðstæður geta einnig haft mikil áhrif
á samsetningu svifryks en almennt mælist
vegryk hærra á þurrum dögum og sót og
salt er meira áberandi þegar úrkoma er
eða snjór á jörðu. Frekar votviðrasamt
var yfir þessa 3 vetrarmánuði sem
mælingarnar stóðu yfir og voru ekki
margir þurrir hægviðrisdagar þegar
vænta má mikillar vegmengunar. Magn
svifryks mældist að jafnaði ekki mjög hátt
og mældist bara einu sinni yfir 50 pg/
m3. Að meðaltali mældist styrkur svifryks
23,1 /vg/m3 þá daga sem sýnatakan stóð
yfir og 32,9 ^vg/m3 þá daga sem notaðir
voru til frekari greiningar. Niðurstöður
rannsóknarinnar frá 2003, sem höfð er
hér til samanburðar, byggir á greiningu
sýna frá 16 dögum sem tekin voru á
fjögurra ára tímabili. Meðalsvifryksstyrkur
þessara daga mældist 78,3 /vg/m3 sem er
töluvert hærra en í rannsókninni núna og
hafa þarf í huga við samanburð þessara
tveggja mælinga. í rannsókninni frá 2003
kom t.d. í Ijós að við hærri svifryksstyrk
jókst hlutfall malbiks í svifrykinu.
Niðurstöður er að finna á mynd 2
og til samanburðar eru niðurstöður
rannsóknarinnar frá árinu 2003 [3]
á mynd 3. Við samanburð þessara
tveggja mælinga sem gerðar eru með
10 ára millibili má sjá töluverðan mun
á samsetningu svifryksins. í fyrsta
...upp í vindinn I 51