Upp í vindinn - 01.05.2014, Blaðsíða 52
SAMSETNING SVIFRYKS í REYKJAVÍK
lagi mældist eldfjallaaska núna sem ekki var á ferðinni í fyrri
mælingunni. Magn öskunnar er töluvert og mælist að meðaltali
um 18% af heildarmagni svifryks. Einnig er áberandi að hlutfall
malbiks hefur minnkað töluvert frá fyrri mælingunni. Skýringar
á því geta verið af ýmsum toga, t.d. hefur notkun nagladekkja
minnkað úr 67% veturinn 2001-2002 í 38% veturinn 2012-
og Bústaðavegar en áhrif sjávarfoks og jarðfoks getur verið
önnur þar en við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar.
Niðurstöðurnar benda til þess að hlutfall malbiks í svifryksmengun
hafi minnkað töluvert frá árunum 1999-2002. Einnig virðist hlutur
salts hafa minnkað umtalsvert. Á móti hefur hlutfall annarra
2013. Einnig hefur malbik orðið slitþolnara sem ætti að draga úr
rykmengun frá malbiki.
Hlutfall svifryks frá sóti og bremsuborðum eykst töluvert. Hvort
tveggja á uppruna sinn frá bílaumferð sem hefur aukist mikið
frá því fyrir 10 árum síðan. Bílaumferð um Miklubrautina við
Grensásveg er áætluð um 57.000 bílar á sólarhring í dag en
árið 2000 var umferðin á Miklubrautinni nálægt Bústaðavegi um
40.500 bílar á sólarhring sem þýðir að umferðin hefur aukist um
40,7% á þessu tímabili. Hlutfall díselbíla hefur einnig aukist en
sótmengun frá díselbílum er meiri en frá bensínbílum. Hlutfall
díselbíla jókst frá því að vera að meðaltali 15,1 % af heildarfjölda
bíla á árunum 1999-2002 í 24,6% af heildarbílafjölda í byrjun árs
2013 [5].
Hlutfall jarðvegs mælist lítillega lægra núna og hlutfall salts er
töluvert lægra en mældist fyrir 10 árum síðan. Erfitt er að fullyrða
hvað veldur þessum mun en ýmsir þættir geta haft áhrif á styrk
þessara efnaeinsogjarðvegsframkvæmdir, vindurog götusöltun.
Einnig getur staðsetning mælistöðvanna skipt máli. Mælistöðin
í fyrri mælingunni var staðsett nálægt gatnamótum Miklubrautar
ÍÞÍNUM HÖNDUM
Náttúran er villt og lýtur eigin lögmálum. Það er þvl á
okkar ábyrgð hvernig við umgöngumst hana. Látum þau
áhrif sem við höfum á umhverfi okkar vera til hins betra.
Sígarettustubbar eru mörg ár eða áratugi að eyðast I náttúrunni
og hafa þar að auki fundist I maga fugla, fiska og sjávarspendýra.
VÍNBÚÐIN
mengunarefna frá bílaumferð aukist umtalsvert þ.e. sót frá
útblæstri og ryk frá bremsum. Hlutfall jarðvegs breytist minna
og er lítillega lægra en í fyrri mælingunni. Töluvert magn af
ösku mældist núna og var hlutfall hennar nálægt fimmtungur
af heildarsvifryksmagninu, en hún var ekki til staðar í fyrri
mælingunni. Hingað til hafa mótvægisaðgerðir til að draga
úr svifryksmengun miðast helst að minnkun á vegryki. í Ijósi
niðurstaðna þessarar rannsóknar gæti verið ástæða til að beina
sjónum meira að sóti og leita leiða til að draga úr myndun þess.
HEIMILDIR
1. Reglugerð nr. 251/2002 um brennisteinsdíoxíd,
köfnunarefnisdíoxíð og köfnunarefnisoxíð, bensen,
kolsýring, svifryk og blý í andrúmsloftinu og
upplýsingar til almennings., Umhverfisráðuneytið,
25. mars 2002.
2. Umhverfisstofnun.
3. Bryndís Skúladóttir, Arngrímur Thorlacius, Steinar
Larssen, Guðmundur G. Bjarnason og Hermann
Þórðarson, „Method for determining the comosition
of airborne particle pollution - Composition of particle
air pollution in Reykjavik,“ lceTec - Technological
Institute of lceland, Reykjavík, 2003.
4. Ylfa Thordarson, „Magn og uppspretta svifryks -
Rannsókn á loftmengun í Reykjavík," Línuhönnun
verkfræðistofa, Reykjavík, 2000.
5. Samgöngustofa, - Umferðarstofa, „Tölfræði -
Bifreiðartölur,“ [Á neti]. Available: http://ww2.us.is/
node/25. [Skoðað 16 September 2013].
&errono
FRESH * HAPPY * MEX
I 5 □ R