Upp í vindinn - 01.05.2014, Page 54
Þorsteinn Eggertsson
BS.c í byggingar-
tæknifræoi með
sérhæfingu á burðar-
virkjahönnun frá
Háskóianum í Reykjavík
árið 2013. Húsasmiður
frá Iðnskólanum í
Reykjavík árið 2005.
Þorsteinn starfar nú
á burðarvirkjasviði
hjá verkfræðistofunni
Mannvit hf.
Steyptar plötur á fyllingu sem þurfa að bera
mikið álag eru viðfangsefni sem margir hönnuðir
mannvirkja hafa velt vöngum yfir. Með tilkomu
nýrra byggingarefna hafa nýjar aðferðir litið
dagsins Ijós eins og t.d. trefjastyrkt steinsteypa.
Almennt er þó plötum á fyllingu sýndur lítill áhugi
á meðal hönnuða og við hönnun á steyptum
plötum hefur oftar en ekki verið stuðst við hefðir
fremur en beina hönnun. Slíkt vakti áhuga minn
og varð til þess að umfjöllunarefni lokaverkefnis
míns til B.Sc prófs í byggingartæknifræði varð
hönnun trefjastyrktra- og hefðbundinna platna
á fyllingu en verkefnið var unnið haustið 2013.
Verkefninu verða gerð stutt skil hér á eftir.
Almennt um steyptar plötur á fyllingu
Steinsteypa er algengt byggingarefni og hefur
lengi verið notuð til byggingarframkvæmda af
hverskonar tagi. Steyptar botnplötur bygginga
eru mikilvægur hluti af burðarvirki byggingarinnar
og jafnframt getur verið gerð mikil krafa til þeirra.
Slíkar plötur geta þurft að bera mikið álag frá
margskonar álagstilfellum en í verkefninu voru
fyrst og fremst skoðuð þau tilvik þar sem gerð er
krafa til mikillar burðarhæfni. Undirlag botnplötu
er einn af mikilvægari þáttum í hönnun hennar
og skiptir oft sköpum um burðarhæfni hennar.
Því þarf að leggja mat á grundunaraðstæður
og fjöðrunareiginleika eða stífleika undirstöðu
plötunnar. Hlutverk plötunnar er þó að skila
álaginu í fyllinguna ásamt því að veita sterkt og
gott yfirborð.
Steyptar plötur á fyllingu geta verið af mörgum
gerðum og stærðum. Líkt og áður hefur komið
fram hafa nýjar plötugerðir verið að ryðja sér til
rúms innan byggingariðnaðarins. Hefðbundnar
piötur með samhangandi járnabendingu hafa
verið algengastar í byggingarframkvæmdum en
þar sem kröfur, meðal annars til byggingarhraða,
hafa verið að aukast hafa vinsældir slíkra platna
dvínað. Steyptar plötur á fyllingu með íblönduðum
trefjum til styrkingar hafa aukið vinsældir sínar,
þó svo að trefjar til steypublöndunar séu ekki
nýjar af nálinni. Hér er einkum átt við plötur sem
myndu flokkast sem stærri plötur sem bera þurfa
álag t.d. í byggingum sem hýsa iðnaðarstafsemi,
íþróttahallir eða vöruhús.
Hönnun platna á fyllingu
Skoðað var hvort raunhæft sé að nota
trefjastyrktar plötur á fyllingu í stað hinnar
hefðbundnu járnbentu plötu sem mikil hefð
hefur skapast fyrir að nota. Verkefnið fjallar þó
54 I ...upp í vindinn