Upp í vindinn - 01.05.2014, Side 58
AÐ BEISLAVINDINN
EÐLISFRÆÐIN OG VINDORKAN
Þorsteinn I. Sigfússon
Forstjóri Nýsköpunar-
miðstöðvar íslands
Prófessor í eðlisfræði
við HÍ
Við þekkjum öll tilfinninguna þegar við erum í miklum vindi t.d. úti við strönd og Kári nær að lyfta
öldutoppum svo sjórinn fryssir; sjófuglarnir leika sér rétt ofan við þá og nýta náttúrulögmál til að svífa
í vindinum. Skýin á himninum sigla yfir og göturykið sem vindurinn nær tökum á, fýkur undan honum.
Þetta er sviðsmynd þar sem mikil orka býr.
Uppruni orkunnar er einhvers staðar í mishitun
lofts. Fyrst og fremst vegna sólaráhrifa, en oftast
vegna þess að misþrýstingur í lofthjúpnum
skapar flutning andrúmslofts þvert yfir láð og lög.
Menn hafa beislað vindorkuna í árþúsund1. Siglt
á sjó og vötnum fyrir tilstilli vinds, malað korn með
vindorku; breytt vindorkunni i vélarorku í myllum
eða hverflum. Sautján öldum fyrir Krist er vitað
um ráðagerðir Hamúrabí í Babýlón um beislun
vindorku. Verkfræðingurinn Heron I Alexandríu
öld fyrir Krist var með vindorkubeislun í gangi.
Á íslandi er saga beislunar vindorkunnar um margt
fróðleg. Á 19. öld voru reistar tvær vindmyllur í
Reykjavík, önnur við Hólavelli árið 1830 og hin
nærri þar sem nú er Bankastræti, sem reist var
1847. Þetta voru myllur ætlaðar til mölunar eins
og rót orðsins „mylla“ gefur til kynna. Vindmylla
var byggð í Vigur, í Skagafirði og á Raufarhöfn.
Þegar ég kom til íslands frá námi 1982 voru
merkilegar tilraunir í gangi á Raunvísindastofnun2
undir stjórn Arnar Helgasonar eðlisfræðings
á árunum 1980-86. Þarna var um að ræða
vindmyllu sem fyrst var prófuð í Kárdalstungu í
Vatnsdal en síðar var rekin vindmylla í Grímsey
og var tengd spaða sem hitaði vatn með núningi
í svokallaðri vatnsbremsu.
í Belgsholti á Mýrum var reist mylla 2012 sem
er verk Haralds Magnússonar bónda þar. Hún
reis 24 metra, féll I miklu veðri og hefur nú verið
endurbyggð.
Loks reisti Landsvirkjun tvær öflugar myllur frá
þýska fyrirtækinu Enercon í nágrenni Búrfells
sem hvor um sig hefur uppsett afl um 900kW.
Hvor mylla er 55 metra há og spaðarnir um 22
metrar hver. Samanlögð orkuframleiðsla þeirra á
ári eru um 5,4 GWst sem er drjúgt afl. Þessar
„myllur" eru auðvitað „vindrafstöðvar" fremur en
malandi kvarnir. Við kjósum að nota gamla orðið
mylla.
Brugðist er við mjög sterkum vindi þannig að
I ...upp I vindinn