Upp í vindinn - 01.05.2014, Blaðsíða 62
KORTLAGNING
NORÐURSLÓÐA
Kjartan Elíasson
Trausti Valsson,
Guðmundur Freyr
Úlfarsson og Sigurður
Magnús Garðarsson.
Greinin er byggð á
MS ritgerð Kjartans
Elíassonar við
Umhverfis- og
byggingarverkfræðideild
HÍ sem hann varði vorið
2014. Meðhöfundarnir
þrír eru MS nefnd
hans og eru þeir allir
prófessorar við deildina.
Áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðir
Loftslagsbreytingar eru að auka mikilvægi
norðurslóða. Með hlýnandi loftslagi eru að opnast
tækifæri sem áður voru ekki fyrir hendi eða of
kostnaðarsamt að nýta. Auk óvissu um framvindu
veðurfars er einnig mikil óvissa um þróun á
svæðinu hvað varðar alþjóðleg réttindi. Þetta er
m.a. vegna þess að í mörgum löndum eru uppi
kröfur til hins alþjóðlega svæðis í miðju Norður-
íshafsins. Mörg lönd sem ekki liggja að íshafinu
hafa lýst áhuga á að taka þátt í verkefnum á
svæðinu. Vegna þessa er nú þegar orðin til mikil
samkeppni um áhrif.
Olíu- og gasvinnslusvæði
Svæðið sem verður mikilvægast út frá fiskveiðum
og olíu er Barentshafið utan við strendur Noregs
og Rússlands eins og sést á Mynd 1. Vinnsla á olíu
hefur þegar hafist bæði utan norsku og rússnesku
strandlínunnar. Þorskstofninn í Barentshafi hefur
verið að stækka á undanförnum árum og færast
norðar. Á þessu svæði er dýpi lítið og nær þetta
grunna svæði langt út. Helstu land- og hafsvæði
á svæðinu er lúta verndun eru á Svalbarða og
Franz Jósefs Landi.
Á hinni gagnstæðu hlið við íshafið, í Beauforthafi,
erumiklarlíkuráolíu.sérstaklegaBandaríkjamegin
í hafinu. Hin fræga Alaska olíuleiðsla var byggð
tii að flytja olíu frá svæðinu en starfar nú ekki á
fullum afköstum, en framleiðsla á svæðinu mun
aukast í náinni framtíð. Á þessu hafsvæði er
minni veiði en í Barentshafi, en ef fiskstofnarnir
sunnan Beringssunds hreyfa sig norður með
breyttu loftslagi gæti þetta breyst.
Meirihluti norðurslóða er opinn fyrir nýtingu en
friðlýst svæði liggja aðallega á norðurströnd
Alaska. Eitt af óleystum landamæramálefnum
norðurslóða er á svæðinu milli Kanada og
Bandaríkjanna. Karahafið hefur mikla möguleika
er tekur til olíu. En þar sem meiri uppbygging og
betri innviðir eru við Barentshaf fyrir borun úti í
sjónum þá verður aðaláherslan þar í upphafi.
Eitt olíuvinnslusvæði er í Karahafi, en á því svæði
eru hinsvegar mörg olíuvinnslusvæði á landi á
hinu olíuríka Rechora svæði. Þaðan liggur þegar
í dag öflug olíuleiðsla til vesturs. Það er lítil veiði
á svæðinu og helstu friðlýst svæði eru á Yamal
skaga.
Við Queen Elizabeth eyjarnar í nyrsta hluta
Kanada eru olíusvæði, og hófst vinnsla á
svæðinu árið 1960. Það eru engin fiskimið
62 I ...upp í vindinn