Upp í vindinn - 01.05.2014, Page 68
SUMARA
GRÆNLANDI
Sumarið 2013 bauðst mér að starfa á framandi slóðum. Það var í Paakitsoq firði, óbyggðum firði á
vesturströnd Grænlands, um 350 km norðan heimsskautsbaugs og 60 km norðan við bæinn llulissat
(sem lengi hét hinu danska nafni Jakobshavn). Þar vann íslenska verktakafyrirtækið ístak að byggingu
22,5 MW vatnsaflsvirkjunar sem þjóna á byggðinni í llulissat og leysir hún olíufrekar dtselrafstöðvar af
hólmi. Ég hafði aldrei áður komið til Grænlands en lengi haft áhuga á landinu, svo það var ekki erfitt að
ákveða sig þegar þetta stóð mér til boða. í seinasta tölublaði ...Upp í vindinn var skrifuð öllu tæknilegri
grein um þessa virkjun og mun þessi grein því aðallega fjalla um lífið á vinnustaðnum og mína upplifun
af landinu.
Ég var vissulega meðvitaður um
að ég væri að fara á afskekktan
og einangraðan stað, en engu að
síður kom það mér á óvart hversu
einangraður vinnustaðurinn inni
í firðinum í raun og veru var.
Fjörðurinn er frosinn megnið af
árinu en fyrsta sigling ársins var
ekki fyrr en um miðjan júní! Það eru engir vegir á milli byggða
á Grænlandi og það sama gilti um vinnustaðinn inni í firði.
Siglingarnar voru því mjög mikilvægar í þessu verki. Á góðum
degi tók siglingin frá llulissat um 2 tíma en stundum lengur.
Þá var siglt á Diskó flóa innan um gríðarlegt magn af stórum
borgarísjökum, hver öðrum flottari.
Þegar ég ber þessa virkjun saman við þær vatnsaflsvirkjanir sem
eru á íslandi þá fannst mér merkilegt að ekki þurfti að stífla neinar
ár til að mynda uppistöðulón, heldur stóðu náttúrulegu jökullónin
tilbúin til ,,notkunar“ ef svo má að orði komast. Stöðvarhúsið sjálft
er inni í fjalli svo það eina sjáanlega ofanjarðar er aðkomubygging
að stöðvarhúsinu, ásamt vegi á vinnusvæðinu, hafnarkanti, lítilli
hafnarbyggingu og þyrlupalli.
Tvennt kom mér þó mest á óvart, það var veðurfarið og
moskítóflugurnar. Úrkoman var lítil sem engin og himinninn
nánast alltaf heiðskír. En það gat blásið all hressilega!
Varðandi moskítóflugurnar þá hélt ég að þær héldu sig bara í
heitu löndunum fyrir sunnan en NEI, þar skjátlaðist mér. Þær
eru mikil plága á sumrin og fékk ég að kynnast þeim ansi vel.
Þær verða seint sakaðar um að halda mér utan hópsins og
ummerkin af félagsskapnum við þær leyndu sér ekki. Ég hef
komið til þó nokkurra landa en aldrei hafa moskítóflugur verið
jafn mikið vandamál og einmitt þarna á Grænlandi, norðan
heimskautsbaugs!
Hulis&at
Greenland
lceland
Landgöngupramminn Viking II að sigla með tæki og tól.
Pétur Hemmingsen
B.Sc. í Umhverfis- og
byggingarverkfræði frá
HÍ2013
68 I ,,.upp f vindinn