Upp í vindinn - 01.05.2014, Síða 80
-
Klukkan var 07:40 að morgni mánudagsins 13. maí 2013 og 30 íslenskir verkfræðinemar, auk nokkurra
lánsamra maka þeirra, voru sestir upp í flugvél fullir eftirvæntingar fyrir ævintýraferðinni sem beið
þeirra. Komið var að hinni langþráðu náms- og útskriftarferð Naglanna og Vír. Téðir verkfræðinemar
höfðu unnið hart við fjáröflun seinasta árið til þess að gera þessa ferð að veruleika og séð til þess að
ættingjar og vinir þurfi ekki að kaupa meiri salernispappír og/eða rækjur næstu áratugi. Nemunum til
halds og trausts í þessari ferð var reynsluboltinn Þorsteinn Þorsteinsson, aðjúnkt við Umhverfis- og
byggingarverkfræðideild HÍ og Berglind Baldursdóttir, fararstjóri.
Ferðin var tvískipt, fyrstu vikunni
var varið í námsferð til Abu Dhabi
og Dubai, en næstu tvær lögðust
alfarið undir útskriftarferð til
Tælands, með stuttri dvöl í Malasíu.
Fyrst var millilent í London. Þar
nýttu sumir tækifærið og fengu sér
hádegismat á upprunalega Hard Rock staðnum, á meðan aðrir
þeystu í H&M eins og íslendingum einum er lagið. Þegar tók að
kvölda héldu ferðalangarnir sáttir á flugvöllinn á ný og flugu af
stað til Abu Dhabi með einu flottasta flugfélagi heims, Etihad.
Við komu í vélina fengu allir gjafaöskju sem innihélt tannbursta
og tannkrem, eyrnapinna, augnhlífar og dúnmjúka sokka, sem
tryggði það að flestir áttu auðvelt með að falla samstundis í
draumaheiminn.
Flogið var alla nóttina, en en við létum ekki deigan síga
morguninn eftir. Eftir lendingu birgðu sig allir upp af áfengum
drykkjum í fríhöfninni, því það að finna áfengi í múslimaríki
er erfiðara en að finna dönsku læðuna Nuk. Beint þar á eftir
var keyrt rakleiðis til hinnar stórbrotnu Sheikh Zayed mosku.
Stúlkurnar voru klæddar í abajur, nokkurs konar létt-búrkur ef
svo má kalla, þar sem þeim yrði annars meinaður aðgangur.
Moskan státar af stærsta marmaragólfi heims í forgarðinum,
stærsta samfellda teppi í heimi sem vegur í kring um 35 tonn
auk 3. stærstu Ijósakrónu í heimi. Ekki má svo gleyma þvi að
bogahvelfingarnar á toppi allra turna moskunnar eru klæddar
með 24 karata gulli. Þrátt fyrir þetta er moskan „aðeins“ sú 8.
stærsta í heimi. En heimamenn þurfa þó ekki að vera litlir í sér
þrátt fyrir þetta, þar sem furstadæmin eiga hvert heimsmetið á
fætur öðru eins og við áttum eftir að komast að.
Farið var í tvær vísindaferðir í Abu Dhabi. Sú fyrri var í Masdar
City, skipulögð borg sem er sem næst því að vera alveg sjálfbær.
Borgin hefur ekki verið reist að fullu, en þó hefur þar tekið til
starfa vísinda- og tækniháskóli sem hefur það að markmiði að
verða fremstur í flokki háskóla á sviði rannsókna á sjálfbærum
og endurnýtanlegum orkuleiðum. Skólasvæðið er sett upp sem
frumgerð verðandi borgar. Borgin mun fá alla sína orku frá sólu
og öðrum endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsþörf borgarinnar
Birgir Fannar
Guðmundsson
80 I ...upp í vindinn