Mímir - 01.04.1973, Qupperneq 3
MÍMIR
BLAÐ FÉLAGS STÚDENTA í ÍSLENZKUM FRÆÐUM
20
12. árg. — 1. tbl. — Reykjavík — apríl — 1972
Ritnefnd: Sigríður A. Þórðardóttir
Sverrir Páll Erlendsson
Úlfar Bragason
Stjórn Mímis safnaði auglýsingum
Baldvin Björnsson, teiknari F. í. T., gerði forsíðuna
Prentsmiðja Jóns Helgasonar
í UPPHAFI
Þá lítur tuttugasti Mímir dagsins Ijós. Á þessari vertíð kemur aðeins út eitt tölublað
í stað tveggja jafnan áður. Því valda síhækkandi útkomukostnaður og erfiðleikar
við öflun efnis til birtingar.
Á liðnu hausti fóru umburðarbréf um öll stig íslenzku- og sögunáms. Oskaði rit-
nefnd þar eftir efni í Mími og bjóst við háum hlöðum ritgerða og fræðigreina auk
smærra efnis. Afrakstur varð hverfandi lítill. Það efni, sem nú er á þrykk út komið,
hefur borizt með þeirri gamalgrónu aðferð að fara bónleið til búðar.
Hugsjón ritnefndar var að breyta Mími. Á undanförnum misserum hefur blaðið
verið borið uppi af B. A.-ritgerðum, en efni verið langt frá því að geta talizt fjöl-
breytt. Af þessum sökum, svo og því að efnissöfnun er orðin mjög erfið og tíma-
frek hafa heyrzt raddir um að leggja beri þessa útgáfu niður. Fleiri hafa þó viljað
krafsa í bakkann og halda áfram. Von ritnefndar er, að þetta tölublað megi vekja fólk
til ritstarfa. Aðeins með því er unnt að halda lífi í Mími gamla, og fjölbreyttara
efni gerir betra og læsilegra blað.
Ætlunin var, að tölublaði þessu yrði skipt jafnt á milli þeirra þriggja systra, sem
sameiginlega nefnast íslenzk fræði. Þrátt fyrir amstur og eftirgangsmuni fékkst
engin sagnfræðileg grein, en af þeimispkum taka málfræði og bókmenntir meira
rúm en ætlað var.
Þökk þeim, sem lagt hafa hönd að útfeolnuj fþttpjjásta Mímis, ekki sízt liprum
starfsmönnum Prentsmiðju Jóns Helgasonar.
Í5LANQ3