Mímir - 01.04.1973, Síða 14

Mímir - 01.04.1973, Síða 14
Hún fyrirlítur móður sína fyrir fátækt henn- ar og heiðarleika. Skötuhjúin á loftinu eru hamingjusömustu persónur sögunnar. Þessa hamingju öðlast þau með því að einangra sig frá umheiminum og lifa í lokuðum heimi ástarinnar. Hið eina, sem þau óttast, er að þurfa ein- hvern tíma að sjá hvort af öðru. „Það er óttinn, sem hefir blekkt hann, óttinn, sem situr um hann, læðist að honum í svefni, hvenær sem hann er einn. Ekkert er hræðilegra en að vera einn."1 Hér kemur fram boðskapurinn um manninn sem félagsveru. Náið samband tveggja mannvera felur í sér hina dýpstu hamingju, en einmana- leikinn hina mestu óhamingju. Þessi skötuhjú eru eins konar rómantískar táknmyndir í sögunni, tákn þeirrar hamingju, sem mannskepnan gæti öðlazt, ef hún væri ekki alltaf að brugga launráð með heilanum: „Við hugsum ekki, leiðréttir hún. — Við lifum."2 En enginn getur flúið umheiminn til lengd- ar, og þau tvö munu verða að kynnast ýmsum erfiðleikum, þegar þeim fæðist barn. Og enginn kemst heldur undan „kaldabrasi veraldarherr- anna". „Þegar hann festir aftur augun á andlitum þeirra, finnst honum þau vera tvö saklaus börn, sem hafa fundið stundarafdrep á óverðskuld- uðum flótta. Og hann veit, að þetta litla, elsku- lega var mun jafnað við jörðu, troðið niður af miskunnarlausum fótum."3 Ungi maðurinn á loftinu er metnaðargjarn og stórhuga. Hann ætlar að verða ríkur. „Fá- tækt er bölvun þeim, sem ekki sætta sig við hana."4 Hann svífst einskis til að komast áfram. Ur því ekki er hægt að komast áfram með heiðar- legum aðferðum, þá verður að nota óheiðar- legar. Prófin hafa lítið að segja. — Nú? Hvað er það þá? — Að kunna lagið á að koma sér áfram."5 Það, sem gildir í lífsbaráttunni, er að vera á „réttri línu". Það hefur ekki verið sársaukalaust fyrir unga piltinn að öðlast þessa reynslu. Hann hefur orðið að þola auðmýkingu. „En hann skal sýna þeim öllum, að hann lætur ekki nota sig. Að hann er enginn heimsk- ingi, enginn sveitapiltur með jómfrúlegt dyggða- komplex. Það skal verða hann, sem fær nokk- uð fyrir snúð sinn. Hann skal hefna sín á öll- um, sem hafa auðmýkt hann."6 En hann finnur, að ekki er allt eins og það á að vera, þegar honum hefur tekizt að komast yfir styrkinn. „Hvers vegna þetta tóm? Nú, þegar lífið er loksins farið að brosa við honum."7 Við ávarpinu bregzt hann á þann hátt að af- neita þeim hugsjónum, sem hann í hjarta sínu aðhyllist, af ótta við að það geti skaðað hann í framsókn hans. Hann huggar sig með því, að allar hans fyrri gerðir og hugsanir séu æsku- glöp: „Nú er hann loks fulltíða maður. Auðvitað er það æska hans, sem er glötuð honum. Æskan, með glöp sín og óra, hugsjónir, birtu, hroka og heimsku."8 Jón er maður, sem tekizt hefur að vinna sig upp úr basli sveitarinnar og eignast allt, sem þarf til þess að teljast velstæður maður, og auk þess fallega konu og hraust börn. Hann er þakklátur fyrir þessi gæði, en þó læðast að honum skrítnar hugsanir: „Þar var maður svo frjáls, — þó þetta væri bölvað basl. Hvað er eiginlega að koma að honum?"9 Hann er einn af þessum góðu mönnum, sem 1 Dægurvísa 1965, bls. 46. 2 Dægurvísa 1965, bls. 127. 3 Dægurvísa 1965, bls. 129—130. 4 Dægurvísa 1965, bls. 27. 5 Dægurvísa 1965, bls. 54. 6 Dægurvísa 1965, bls. 136. 7 Dægurvísa 1965, bls. 135. 8 Dægurvísa 1965, bls. 137. 9 Dægurvísa 1965, bls. 16. 14

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.