Mímir - 01.04.1973, Side 35

Mímir - 01.04.1973, Side 35
næðinu gera það enn brýnna, að reynt verði að nýta þá kosti, sem húsnæðið hefur þó upp á að bjóða, m. a. þann, að unnt væri að koma hér á fót stofnanabókasöfnum, þar sem sæmileg vinnuaðstaða gæti skapazt. Þetta er tvímælalaust brýnasta verkefnið, sem framundan er. Það er engu líkara en að mun erfiðara sé að fá bækur hingað í Arnagarð en á aðra staði, t. d. Tjarnargötu, þar sem þó er enginn formlegur rammi utan um bókasafn. Og ég hygg, að ég sé ekki einn um þá skoðun, að sú „lausn", sem við höfum búið hér við, sé næstum verri en engin. Lausn verður að fást á þessu máli og það sem fyrst. Bókasafnið er kjarninn í vinnuaðstöðu kennara og nemenda og án hans getur stofnanahugmyndin ekki rætzt. Hvað viltu svo segja að lokum? Um það, sem þegar hefur gerzt, vil ég bæta því við, að með útgáfu ritaflokks stofnunarinnar hefst að nýju forlagsstarfsemi háskólans á sviði vísindaútgáfu, sem hann stendur einn undir að öllu leyti, bæði fjárhagslega og á annan hátt, en legið hefur niðri á annan áratug. Hefur þessi byrjun engan veginn gengið átakalaust. En stofn- unin hefur notið margs háttar ómetanlegs stuðn- ings við að hrinda þessari útgáfu af stað. Eink- um hefur menntamálaráðherra, Magnús Torfi Olafsson, stutt þetta mál með ráðum og dáð. An hans atbeina hefði þessi útgáfa ekki komizt á laggirnar með þeim hætti, sem nú er orðið. J. P./E. E. RÁÐSTEFNA I. A. S. S. HÉRLENDIS KANNSÓKNASTOFNUN I BÖKMENNTAFRÆÐI Forstöðumaður: Sveinn Skorri Höskuldsson, prófessor. Formaður stjórnar: Oskar Halldórsson, prófessor. Ritari stjórnar: Fríða A. Sigurðardóttir, fulltrúi stúdenta. Viðtal við Svein Skorra Höskuldsson. Hvert er starfssvið bókmenntastofmmar í dag og hverjir eru starfsmenn hennar? Segja má, að eins og er sé aðalverk stofnunar- innar sú bókmenntakennsla, sem fram fer í Heimspekideild. Starfslið stofnunarinnar eru kennarar í íslenzkum og almennum bókmennt- um og bókmenntafræði, og þeir annast þessa kennslu. Hvert er þá vald stofnunarinnar? Getur hún sjálf ákveðið kennsluhætti og ráðið kennara, eða þarf hún að leggja þessi mál undir deild? Já, þess þarf hún. Stofnunin hefur í sjálfu sér tillögurétt um þetta. Segja má, að réttur stofn- unarinnar sé sami réttur, og sérhver háskóla- kennari hefur til tillögugerðar. Að því er kennsl- una varðar, höfum við haldið kennarafundi og rætt þau mál, en síðasta ákvörðun í þeim efn- um liggur hjá deildinni. Hins vegar er það hefð, að farið sé eftir tillögum kennara í viðkomandi grein. Er unnið að rannsóknum og útgáfu á vegum stofnunarinnar? Já. I einni grein reglugerðarinnar segir, að stofn- unin skuli annast útgáfu bókmenntatexta og fræðirita um íslenzkar og almennar bókmenntir. Auk kennslunnar hefur þetta verið nærtækasta 35

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.