Mímir - 01.04.1973, Side 36

Mímir - 01.04.1973, Side 36
og sjálfsagðasta verkefnið, og í dag kemur út fyrsta ritið í ritröð, sem nefnist Frœðirit. Þessi bók er eftir Oskar Halldórsson og nefnist Bragur og Ijóðslíll, stílfræðilegt og bragfræðilegt rit, nánast handbók fyrir stúdenta, en getur komið hverjum öðrum fróðleiksfúsum manni að gagni. Stjórn stofnunarinnar hyggst halda áfram útgáfu þessa fræðiritaflokks, sem öðru fremur verður miðaður við þarfir stúdenta til þess að koma upp nauðsynlegum handbókakosti fyrir þá. Til tals hefur komið, að næst í röðinni verði rit um bókmenntagreiningu, þar sem fjallað verði um greiningu skáldsagna, en of snemmt er að skýra nánar frá því. Eg vil geta þess hér, að við skilgreinum út- gáfuhlutverk stofnunarinnar á þann hátt, að við gefum ritin út, en forleggjum ekki sjálfir. Þannig hyggjumst við gera samninga við útgáfufyrir- tæki um að forleggja fyrir okkur, en starf stofn- unarinnar verður fyrst og fremst að vinna að handritum. Með þá litlu fjárveitingu, sem við fengum í ár, kr. 170.000,00 hefði verið óhugs- andi að gefa út bók, en með samvinnu við Hið íslenzka bókmenntafélag, varð þetta kleift. Þetta samstarf við útgáfufyrirtæki er hugsað sem bráða- birgðafyrirkomulag, þangað til háskólaforlag kemst á fót. Næst fræðiritaflokknum gæti ég trúað, að yrði útgáfa bókmenntatexta, allrækilegt úrval bókmennta frá um 1300 til vorra daga, fyrst og fremst miðað við þarfir stúdenta. Það er ákaflega bagalegt fyrir stúdenta á B. A. stigum og kandidatsstigi, að ekki skuli vera til hand- hægar, traustar og fræðilegar útgáfur þeirra bókmenntatexta, sem farið er yfir, en við höf- um hugsað okkur þennan flokk svo víðtækan, að hann megi nota bæði á B. A. stigum og í framhaldsnámi. Um fræðilegan staðal útgáf- unnar er þess að geta, að við munum ekki fara inn á verksvið Stofnunar Arna Magnússonar. Hér yrði um að ræða vandaðan texta fyrir stúdenta, en ekki stafréttar útgáfur. Þá höfum við hugsað okkur að gefa út grund- vallarrannsóknir, doktorsritgerðir og rannsókn- ir af viðlíka staðli, en þær hafa langan aðdrag- 36 anda, og ég get ekki nefnt neitt, sem von er á alveg á næstunni. Síðan er ætlunin að gefa út íslenzka bók- menntasögu. Að vísu hefur ekki enn verið valin útgáfustjórn, en þetta verk yrði samið af nokkr- um höfundum. Varðandi stærðina, höfum við hugsað okkur tveggja binda verk, u. þ. b. 1000—1500 síður, um íslenzkar bókmenntir frá upphafi til vorra daga. Loks höfum við mikinn áhuga á að koma út bókmenntafræðilegu lexikoni, uppsláttarriti með skilgreiningum hugtaka og ef til vill stuttum æviágripum höfunda. Að þessu verki yrði að draga langa nót, safna þeim fræðiorðum, sem þegar hafa verið nomð og smíða ný. En einn veikleiki greinarinnar er, hve óljós og svíf- andi fræðiorðaforðinn er. Hveð verður um Studia Islandica? Studia Islandica kemur út áfram, og er þegar búið að setja næsta hefti, sem er fyrsta bindið á vegum stofnunarinnar. Við höfum hugsað okkur að halda áfram því samstarfi, sem verið hefur með Háskólanum og Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs, og ritið kemur því út á vegum Menningarsjóðs og Bókmenntastofnunar. Næsta hefti er ritgerð Helga Skúla Kjartanssonar um myndmálið í Passíusálmum Hallgríms Péturs- sonar. Er áformað að gefa út tímarit á borð við Skírni? Við höfum ekki í bráð hugsað okkur annað tímarit en Studia Islandica, þar sem birtast styttri ritgerðir, enda hefur stofnunin næg brýnni verkefni en að fara út í samkeppni við Skírni. Hvað er að segja um bókamál stof nunarinnar ? Bókamál stofnunarinnar eru í ólestri. Við höf- um engar bækur nema örfáar, sem stofnunin hefur fengið gefnar. Það hafa aftur og aftur komið ítrekaðar óskir frá kennurum og stúdent- um í Heimspekideild, um að hér í Arnagarði

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.