Mímir - 01.04.1973, Qupperneq 38
Er ákveðið, hvaða málaflokkar
verða teknir fyrir?
Þema ráðstefnunnar er ekki endanlega ákveðið,
en þetta verður hugmyndafræðileg ráðstefna um
samspil hugmynda og bókmennta á 20. öld.
Þetta svið verður að þrengja mjög og velja úr
því ákveðinn málaflokk, til dæmis þjóðfélags-
legar hugmyndir eða heimspekilegar.
Hvemig er stofnuninni stjómað?
Stofnuninni er stjórnað af þriggja manna stjórn,
sem tekur ákvarðanir t. d. í útgáfumálum. Hvað
kennslu við kemur, eru haldnir kennarafundir
þegar þörf er á.
Fundir stjórnar eru ekki reglulegir, heldur
þegar þurfa þykir. Þannig geta þeir verið með
löngu millibili eða dag eftir dag, allt eftir því
hvort eitthvað brýnt ber upp á. Fundargerð er
öllum opin og ekki litið á hana sem neitt
leyndarplagg, og ritari stjórnar hefur hana með
höndum. Hins vegar lít ég svo á, að leita þurfi
heimildar stjórnar, ef birta á eitthvað úr fund-
argerðum, en að mínum dómi er fundargerð
stjórnarinnar viðlíka opinbert plagg og aðrar
fundargerðir Háskólans.
Gætu stúdentar fengið að sitja
stjórnarfundi, ef þar yrðu rædd mál,
sem koma þeim sérstaklega við?
A þetta hefur aldrei reynt, og engin ákvæði um
það í reglugerð stofnunarinnar. Þetta hefur
aldrei verið rætt í stjórninni, en ef ósk um slíkt
kæmi fram, er það mín skoðun, að það ætti að
verða við henni. J. P./S. P. E.
MARGAR PRÓFRITGERÐIR ERU ANZI MERKILEGAR
KANNSÓKNASTOFNUN
í SAGNFRÆÐI
Forstöðumaður:
Olafur Hansson, prófessor.
Forstöðumaður stjórnar:
Þórhallur Vilmundarson, prófessor.
Ritari stjórnar:
Helgi Þorláksson, fulltrúi stúdenta.
Viðtal við Ólaf Hansson.
Hvert er verkssvið
Kannsóknastofnunar í sagnfræði?
Verksviðið er mikið á pappírnum, og má lesa
um það allt í reglugerðinni. Þar segir, að stofn-
unin skuli annast grundvallarrannsóknir í sagn-
fræði og skyldum greinum, gangast fyrir ráð-
stefnum, námskeiðum, rannsóknaæfingum og
fyrirlestrum, annast útgáfustarf og alla kennslu
í sagnfræði við heimspekideild Háskólans.
Sér stofnunin þá um ráðningu kennara?
Nei, stofnunin getur ekki ráðið kennara sjálf.
Allar lokaákvarðanir eru teknar á fundum heim-
spekideildar. Hins vegar hefur stofnunin fullan
tillögurétt í sambandi við ýmis framkvæmda-
mál hennar, sem eðlilegt er, til dæmis vegna
námskeiða og slíks. Akvarðanir um það, eru
teknar á deildarfundum og tillögur stofnunar-
innar að jafnaði samþykktar.
Þegar við ræðum um kennara, langar mig
til að geta þess, að okkur vantar ný kennara-
embætti. Mest ríður á að fá prófessorsembætti í
íslenzkri samtíðarsögu. I það starf þyrfti að fá
ungan, harðan, duglegan mann, því að hér eru
fjölmörg vandamál ókönnuð. Til dæmis væri
æskilegt að koma á hópvinnu, þar sem tekin
væru fyrir ákveðin svið í sögu 20. aldar. En
38