Mímir - 01.04.1973, Qupperneq 61
STARFSANNÁLL MÍMIS 1971 - 72
Aðalfundur Mímis var haldinn föstudaginn 22.
október 1971 í stofu 308 í Árnagarði. Fráfar-
andi formaður, Þórður Helgason, gaf yfirlit yfir
starfsemi ársins, en gjaldkeri, Sæmundur Rögn-
valdsson, skýrði reikninga. Urðu allmiklar um-
ræður um fjárhag félagsins og möguleika á
tekjuöflun. Kosin voru í stjórn Sæmundur
Rögnvaldsson, formaður, Sverrir Páll Erlends-
son, Þórður Helgason, Guðrún Aðalsteinsdóttir
og Gunnlaugur Ingólfsson. Stjórnin skipti síðan
með sér verkum og varð Sverrir gjaldkeri, Guð-
rún ritari, en Þórður og Gunnlaugur sáu um að
auka sölu á upplagi blaðsins Mímis. Árstillag
félaga var á aðalfundi hækkað úr 200 kr. í 300
kr. Einnig urðu á fundinum umræður um fjár-
hag félagsins og auglýsingastjóra. Var ákveðið
að reyna framvegis að ráða auglýsingastjóra, sem
fengi 10% af innkomnum auglýsingatekjum.
Vetrarstarfið hófst að venju á ferðalagi 7.
nóvember, og var haldið upp í Þjórsárdal með
Gísla Gestsson, safnvörð, í fararbroddi. Var far-
ið þar á helztu staði, og höfðu menn gaman
af þrátt fyrir mjög óhagstætt veður. Þátttakend-
ur voru 30, þar af 2 börn.
Kynningarkvöld (nýr siður frá fyrra ári) var
fyrir 1. árs fólk 12. nóv., og var það haldið
í Dentalíu. Þar töluðu Fríða Á. 'Sigurðardóttir
og Bjarni Olafsson um námið í deildinni. Gunn-
laugur Ástgeirsson flutti kafla úr óútkominni
bók sinni, en Einar Olafsson sagði frá þýðinga-
baráttu sinni úr spænsku og las afrakstur þeirrar
baráttu, ljóð eftir Pablo Neruda. Skemmti fólk
sér við söng og dans fram á nótt, en allt tók
þó enda að lokum.
Síðan fór lítið fyrir starfi Mímis opinberlega,
en þeim mun meira var unnið á bak við tjöld-
in sem sjá mátti og heyra í Miðbæ föstudag-
inn 10. des. Mímir varð nefnilega 25 ára 11.
des., og var feikileg afmælishátíð haldin í því
tilefni. Formaður bauð menn velkomna, en skip-
aði Heimi Pálsson, cand.mag., veizlustjóra. Olaf-
ur Halldórsson, handritafræðingur, flutti ræðu
kvöldsins. Böðvar Guðmundsson sagði ferða-
sögu og flutt voru minni bókmennta, málfræði
og sagnfræði. Að lokum var fluttur hluti úr
Lokasennu, en síðan stiginn dans fram á nótt
og mikið sungið. Klukkan 12 á miðnætti færði
formaður FSH, Anna Agnarsdóttir, Mími gjöf,
forláta heftara, mun veglegri en FSH á sjálft.
Þorrablót var haldið í Miðbæ 18. febrúar
1972. Björn Teitsson, heiðursgestur, hélt ræðu.
Þá flutti Kristján Jónsson frumsamda stöku, og
Gunnlaugur Ástgeirsson hafði klukkustundar
dagskrá. Þar voru m. a. þættir af málvísindum
og bókmenntum og Helgi Bernómsson flutti
hluta af girðingasögu Islands. Enn var sungið
og dans stiginn.
Fyrsti fundur hjá Mími var í Norræna húsinu.
Þar sýndi Björn Th. Björnsson myndir og tal-
aði um miðaldalist á Islandi. Aðeins 9 félagar
mættu, þegar flest var, og var það hin mesta
synd, því að þetta var framúrskarandi erindi.
Helgi Guðmundsson, lektor, kom á fund í
Norræna húsinu 15. marz og ræddi um keltn-
esk áhrif á Islandi. Var það allfjölmennur fund-
ur, og urðu fjörugar umræður á eftir.
Eins og undanfarin ár tók Mímir þátt í
tveimur rannsóknaræfingum í samvinnu við
Félag íslenzkra fræða. Á þeirri fyrri, 23. des.,
flutti Svíinn Peter Hallberg erindi um skáld-
skap Thors Vilhjálmssonar, en á þá síðari, 25.
marz, kom Jón Helgason, prófessor. Erindi
61