Mímir - 01.04.1973, Page 62
hans nefndist Eddusöngur. Voru samkomur þess-
ar vel sóttar, einkum sú síðari.
Dagana 23.—25. júní var farið í ferðalag
vestur á Snæfellsnes og út í Flatey. Var Björn
Þorsteinsson fararstjóri. Þátttakendur voru um
20 og munu hafa skemmt sér konunglega. Þá
hélt Mímir stúdentum frá Norðurlöndunum,
sem voru hér á sumarnámskeiði, hóf í Miðbæ.
Fáir innlendir stúdentar mættu til leiks, en þó
mun þetta hafa verið gott hóf.
Fyrirhuguð sagnfræðiráðstefna fórst fyrir í
haust, en hún er ekki af dagskrá hjá félaginu.
Auk þessa flutti félagið í nýtt húsnæði í Fé-
lagsstofnun stúdenta og vasaðist í ýmsum mál-
um, s.s. að senda menntamálaráðherra áminn-
ingar- og hvatningarbréf og skipaði fólk í nefnd-
ir að beiðni FSH o. fl. Blaðaútgáfa hefur verið
með sama sniði og fyrr, en miklum mun erfiðari
fjárhagslega, og er blað í deiglunni, en ekki í
prentun.
Við haustvertíðarlok 1972.
Sœmundur Rögnvaldsson.
TUMMA KUKKA
SÖNGBÓK ÁRSINS!
SÖNGBÓK ALDARINNAR!
SÖNGBÓK EILÍFÐARINNAR!
VERÐ KR. 250.00
MÍMIR
62