Mímir - 01.06.1981, Page 26

Mímir - 01.06.1981, Page 26
orðið til. Þær eru því hvort tveggja í senn, afrakstur munnlegrar hefðar og verk þeirra sem felldu sagnirnar saman. Hvað þættina varðar er það athyglisvert að í fæstum þeirra eru höfðingjar í aðalhlut- verkum og einnig gerast þeir langflestir utan Islands. Herbert S. Joseph segir um þetta atriði: „. . . þættir dealing with local matters may have been swallowed up and used by the family sagas to such an extent that they are no longer recognizable as having once been independent“ (Joseph 72:95). 1 beinu framhaldi af þessu er auðvelt að ímynda sér hver varð raunin þegar maður af lágum ætt- um, lítt þekktur utan sinnar heimabyggðar, varð stofn í munnlegri frásögn. Þá var held- ur lítil von til þess að hún yrði færð í stærra samhengi. Auk þess var það einungis á færi höfðingja að láta skrá sögu á skinn. Af þess- um uppruna trúi ég að sé megnið af þeim þáttum sem hafa varðveist sjálfstætt og eru margir hverjir æði glæstar smásögur, t.d. Auðunar þáttur vestfirska. Þættir sem smásögur. Þótt það komi ætíð til með að reynast örðugt að sanna hvort tiltekinn þáttur hafi í öndverðu verið saminn sem sjálfstæð frá- sögn eða innskotskafli í t.a.m. konungasögu, er þó æði margt sem styður fyrra atriðið. Flestir þættir hafa alla eiginleika sjálfstæðrar smásögu. I alfræðiriti Menningarsjóðs um bókmenntir stendur: „voru aðalefni smásagna framan af óvenjuleg ytri atvik rakin á knapp- an og hlutlægan hátt“ (H. Pétursson 72: 95). Þessi lýsing kemur algerlega heim við þættina. Njörður P. Njarðvík setur upp í 4 liðum þau atriði er skilja smásögu frá skáld- sögu: 1. Smásaga er tiltölulega stutt, 2—100 bls., oftast fastbundin sjónarhorni. 2. Atburðarás er takmörkuð. „Hún hneig- ist til sviðsetningar og takmarkast við fáa atburði, jafnvel aðeins einn“. 3. Persónur eru sjaldnast fleiri en 3—4, þær þróast ekki, heldur afhjúpast fyrir lesanda. 4. Smásaga hefur venjulega eitt þema, allt stefnir í átt til hnitmiðunar, það kemur einnig fram í meitluðu málfari og stíl. (N. Njarðvík 75:66). Ekki fæ ég séð að neitt í þessari lýsingu stangist á við allan þorra íslendingaþátta. Hugsanlegar undantekningar má jafnvel túlka sem dæmi um ranga flokkun, t.d. Þorsteins þáttur stangarhöggs, sem Anderson telur að sé „a perfect miniature family saga“ (And- erson 75:440). Það má heita augljóst að þættir hafa alla eðlisþætti smásögunnar og Islendingar átt glæstar smásögur 2 öldum áður en Boccacio skrifaði Decameron. Sjálfstæðinu er best lýst með því að þættirnir varðveittust sjálfstætt. Hvernig unnu sagnaritararnir úr munnlegum frásögnum. Þótt menn hafi jafnan greint á um tilurð íslenskra fornsagna, eru þó ýms atriði þess eðlis að ekki er hægt að afneita þeim sem efniviði í sögur. Yfirleitt eru þetta munnlega varðveittir textar t.a.m. Eddukvæði, drótt- kvæðin, ættvísi ýmiskonar og iögspeki, sem allir gegna mikilvægum hlutverkum í sögun- um. Þá er talið fullvíst að sagnaritararnir hafi haft aðgang að rituðum heimildum t.d. ritum Ara fróða. Sá hluti efniviðarins sem mest hefur verið deilt um eru munnlega varðveittar frásagnir, sem ýmsir hafa kallað þætti eða söguþætti. Hvernig sagnaritararnir unnu úr hinum munnlega varðveitta efnivið er mjög á huldu. Þeir hafa þó annaðhvort numið frásagnirnar sjálfir og skráð eftir eig- in minni, eða að þeir hafa látið segja sér sögurnar fyrir. Það markast vitaskuld mest af þessum vinnuaðferðum hver afstaða text- anna er gagnvart munnlegri hefð. Áður en sögur voru ritaðar er næsta víst að þær hafa gengið í munnmælum, er í því 24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.