Mímir - 01.06.1981, Side 27

Mímir - 01.06.1981, Side 27
tilviki nóg að líta til tímans er líður frá því er atburðir gerast og þar til þeir eru skráðir. Hér að framan var greint frá þáttakenning- unni og því viðhorfi að líta til þáttanna sem hinna smærri frásagnareininga er stóru sög- urnar voru smíðaðar úr. Það er vissulega margt sem gerir þætti líklega í þetta hlut- verk, þeir eru tiltölulega stuttir og þeim svipar mjög til sjálfstæðra frásagnarliða sem felldir hafa verið inn í stærri sögur. Lars Lönnroth segir um slíka frásagnarliði í Njálu: „However, the episodes most ob- viously based on an earlier tradition are those which stand most easily on their own as narratives within the saga“ (Lönnroth 76:34). I þessari ritgerð hef ég haft not af tveim- ur bókum sem einkanlega fjalla um munn- lega frásagnarlist og aðferðir þess fólks sem sá um að varðveita kveðskap munnlega, er þar um að ræða bækur Albert B. Lords og David Buchans. Lord, ásamt læriföður sín- um Milman Parry, rannsakaði aðferðir júgó- slavneskra kvæðamanna. Buchan lýsir að- ferðum skoskrar konu er nam og endurgerði sagnadansa. Þótt í báðum þessum tilvikum sé um að ræða kveðskaparform má hafa gagn af þessum rannsóknum við að reyna að nálgast íslenska frásagnarhefð, ef varast er að alhæfa um of. Það er t.a.m. ómögu- legt að segja til um hvort hér á Islandi hafi verið um að ræða jafnmikla sérhæfingu í þessari list og tíðkaðist víða erlendis, hvort beinlínis hafi verið til eitthvert fyrirbæri sem kalla mætti stétt sagnafólks. Þó verð- ur að gera ráð fyrir að einhver vísir af slíku hafi þrifist hér, og a.m.k. einhverjir hafi tileinkað sér þá tækni sem þeim einum er gefin er vanur er flutningi slíkra texta. Fólk hefur ekki numið sögurnar orðrétt, heldur tekið við söguþræðinum og endurskapað síð- an söguna í keimlíkri mynd, með hjálp lög- mála hefðarinnar. Þessi endursköpun hefur að öllum líkindum fylgt ákveðnum reglum og fólk hefur haft á valdi sínu formgerðir, minni og lýsingar á sérstökum aðstæðum, t.d. þinghaldi og bardögum. Það hefur því verið vönu fólki næsta auðvelta að gera frá- sögnum skil og hefðin var fljót að setja mark sitt á frásagnir. Preben Meulengracht Soren- sen athugaði Sturlu þátt í þessu augnamiði. Sturlu þáttur er gott dæmi þar sem hann er líklega hafður eftir Sturlu sjálfum og hefur gengið stutt í munnmælum. Engu að síður hefur frásögnin mótast af hefðinni, hún var færð inn í það frásagnarmynstur sem algeng- ast er í stuttum frásögnum og hefur mótast af fornum minnum (Sorensen 77:165—9). Frásagnir hafa oft gengið í kringum ein- hvern ákveðinn kjarna. Það er talið óyggj- andi að vísum hafi oft á tíðum fylgt frásögn til skýringar. Þó að löng samtöl séu það sem einna helst er hægt að eigna skrásetjurunum, þá er þar að finna ýms einkenni munnlegrar geymdar, t.d. formúlukennt orðalag. Það hef- ur þó verið bent á að ýms fræg tilsvör, t.a.m. þeim var ek verst er ek unna mest og aðrar perlur keimlíkar, hafi varðveist í munnmæl- um. Þá hefur að öllum líkindum fylgt saga til skýringar (de Vries ’42:275). Þennan möguleika verður að hafa í huga þegar hug- að er að munnlegum frásögnum. Margir fræðimenn vilja leggja mikla á- herslu á þátt hinna stuttu frásagnareininga í þróun íslenskrar sagnaritunar. W. P. Ker segir m.a.: It is in the short story, the episodic chapter, that the art of Icelandic narrative first defines itself. This is the original unity; it is here, in a limited, easily comprehensible subject matter, that the lines are first clearly drawn (Ker ’57: 189). En viðhorf hinna eiginlegu sagnaritara, a.m.k. Snorra Sturlusonar, er nokkuð annað. Hann virðist hafa borið takmarkaða virðingu fyrir munnlegum frásögnum. I prólógus sín- um að Ólafs sQgu ins helga inni sérstöku seg- ir hann svo: En Sggur þær sem sagðar eru, þá er þat hætt, at eigi skilisk öllum á einn veg. En sumir hafa eigi 25
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.