Mímir - 01.06.1981, Page 29

Mímir - 01.06.1981, Page 29
þó ekki verið virkilega skýrt fram sett fyrr en nú á allra síðustu árum. Theodore M. Anderson hefur sett upp byggingarmódel fyrir 24 ættarsögur, það er í 6 liðum: 1. kynning, 2. flækja, 3. ris, 4. hefnd, 5. sættir, 6. eftirmál (Anderson ’67: 5). Þessi uppsetning á formgerðum sagnanna olli nokkrum þyt þegar hún kom fyrir al- menningssjónir. Það fellur að vonum misvel að hinum einstöku sögum og er engan veg- inn bundið við ættarsögurnar, Hitt er svo annað mál að módelið er lýsandi fyrir ættar- sögurnar sem bókmenntagrein. Anderson hef- ur lýst tilgangi sínum svo: The object of the exercise was not to oversimpli- fy, but to suggest that the family sagas, in addi- tion to a common setting in Iceland during the period 930—1050 (which is also a generic car- acteristic), share very often (not always) certain principles of dramatic construction which are found much less often (not never) in other groups of sagas (Anderson 75:438). Þetta mynstur lítt breytt og skoðað í víðara samhengi er yfirleitt nefnt deilumynstrið. Joseph C. Harris birti árið 1972 athugun sína á 31 þætti. Þeir höfðu það allir sameigin- legt að fjalla um skipti íslenskra manna við erlenda höfðingja, mest norska konunga. Harris uppgötvar einnig ákveðin lögmál í frásögninni, og hann setur upp 6 liða atburða- mynstur: 1. kynning, 2. utanferð, 3. fjand- skapur, 4. sættir, 3. heimferð, 6. niðurlag (Harris ’72:7). Harris færir alla þættina inn í þetta mynstur og greinir samviskulega frá frávikum, sem að vonum eru þó nokkur. Þetta mynstur er að finna víðar en í þátt- unum því Lars Lönnroth notaði mynstur Harris við að athuga ferðafrásagnir í Njálu. Lönnroth einfaldar mynstrið mikið, raunar um of að mínu mati (Lönnroth ’76:71). Hann kallar það ferðamynstur (travelpattern) og gengur það venjulega undir því nafni. Þetta mynstur má finna mun víðar, t.d. í fornaldar- og riddarasögum. Þetta mynstur er t.a.m. í raun ramminn um Orvar-Odds sögu. Lars Lönnroth skýrir frá því neðanmáls í grein í Scandinavian Studies 1975 að hann hafi haft niðurstöður Harris að leiðarljósi er hann athugaði frásagnirnar í Njálu. I fram- haldi af þessu ályktar Lönnroth síðan: „The fact that the scheme can be used for such a purpose shows that it should not be confined to the analysis of „independent“ short stor- ies“ (Lönnroth ’75:426). Þessa staðhæfingu Lönnroths á ég mjög erfitt með að sætta mig við. Mér finnst mun vænlegra að álykta út frá þessu að skyldleiki sé með þáttunum og hinum tiltölulega sjálfstæðu frásagnarliðum sem Lönnroth athugar, og að uppruninn sé sameiginlegur. I báðum tilvikum er byggt á munnlegum frásögnum og í raun skilur ekk- ert á milli annað en varðveislan, þ.e. þætt- irnir hafa varðveist sjálfstætt. Grundvallarmynstrin tvö, þ.e. deilumynstr- ið og ferðamynstrið, eru bein afurð þess þjóð- félags sem hér var á söguöld. Þjóðfélagsgerð- in og landshættirnir móta frásagnarhefðina og mynstrin eru gott dæmi um það hvernig hin munnlega hefð er bundin ákveðnum löndum. Ættarsamfélagið og hefndarskyldan eru grunnur deilumynstursins. Lega landsins gerði siglingar nauðsynlegar og kappar þurftu að fara í utanferðir til að sækja sér frægð og frama við hirðir norrænna konunga. Þegar menn sneru aftur úr utanferðum var þess að sjálfsögðu vænst að þeir segðu fréttir af á- standinu ytra, þannig að ferðafrásagnir hafa verið margar. Snorri Sturluson segir í áður nefndum prólógus sínum að Ólafs sögu: „Spurðu menn þá á hverju sumri tíðendi landa þessa í milli, ok var það síðan í minni fært ok haft eptir til frásagna“ (422). Þegar mynstrin tvö eru athuguð í sambandi við þætti kemur vel í ljós að þau skiptast eftir því hvort þátturinn gerðist á Islandi eða utan þess. Þættir sem gerast á Islandi eru mótaðir af deilumynstrinu, t.d. Ölkofra þáttur, Þorsteins þáttur stangarhöggs og Hrómundar þáttur halta. Þættir sem gerast að mestu við hirðir norrænna konunga eru 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.