Mímir - 01.06.1981, Síða 34

Mímir - 01.06.1981, Síða 34
hann sótt mikla, . . gerir hann þá ákafliga magran“ og „. . . hann er þá kollóttr ok heldr ósælligr“ (364). Hann jafnar sig síðan fljótt er hann nýtur kærleika Sveins konungs. Þessi hraklega lýsing á Auðuni á sér sam- svörun í lýsingunni á Mána skáldi í Sverris sögu konungs: „Máni kom til hans austr at landsenda, var þá kominn frá Rómi ok var stafkarl gekk inn í stofuna, þar er konungr- inn var með sveit sinni, ok var hann þá ekki féligr, Máni, kollóttr ok magr ok nær klæð- lauss“ (137—8). Skyldleiki þessara lýsinga er auðsær. Þær byggja að líkindum á sam- eiginlegum grunni, sem er sagnir ýmsar af Rómferlum og hrakningum þeirra. Biblíusagnir: Allur andi Auðunar þáttar er í hæsta máta kristilegur. Viðhorfin til kristninnar eru jákvæð og Auðunn er að tals- verðu leyti kristin hetia. Sveinn Úlfsson stundar sitt kristnihald samviskusamlega. Hann fjármagnar einnig pílagrímsferð Auð- unar og það er ekkert einsdæmi því: „Morg- um manni gefur Sveinn konungr silfr til suðurgongu“ (367—8). Það er þó eingöngu þegar Auðunn kemur fyrir Svein eftir hrakn- ingana á leiðinni frá Róm, sem hægt er að greina bein líkindi með sjálfri Biblíunni. T ]:>ættinum er sagt svo frá: Ok er beir genau inn aptr, bá þekkði konungr mann ok þáttisk. finna, at eisji bafði frama til at stanga fram at hitta hann. Ok nú er hirðin gekk inn, þá veik konungr út ok mælti: „Gangi sá nú fram, er mik vill finna; mik grunar at sá muni vera maðrinn“. Pá gekk Auðunn fram ok fell til fóta konungi (365). f Lúkasarguðspjalli er sagt frá konu sem hafði haft blóðlát í 12 ár, án bess að hlióta lækningu. Hún náði að snerta fald yfirhafnar Jesú og læknaðist þá þegar, og Jesús sagði: Hver var það sem snart mig? Og er allir svnjuðu fyrir það, sagði Pétur og þeir sem með honum voru: Meistari mannfjöldinn þyrpist að þér og þrýstir á. En Jesús sagði: Einhver snart mig og ég fann, að kraftur gekk út frá mér. En er konan sá að hún duldist ekki, kom hún skjálfandi, féll til fóta honum og sagði frá því /'---/ fyrir hverja sök hún hefði snortið hann (Lúk. 8:43—48). Ég tel að líkindin þarna á milli séu nægilega greinileg til þess að fullyrða megi að um tengsl sé að ræða, altént er andinn í frásögn- inni æði keimlíkur. Þau orð sem Sveinn konungur lætur falla þegar hirðin hlær að aumlegu ásigkomulagi Auðunar eru einnig í hæsta máta í anda Jesú Krists: „Eigi þurfu þér at honum at hlæja, því at betr hefir hann sét fyrir sinni sál heldr en ér“ (365). Þetta tilsvar Sveins minnir óneitanlega á ýmsar frægar setningar úr Biblíunni, t.a.m.: „Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum“ (Jóh. 8:7). Vonandi nægir þetta ófullkomna yfirlit sem ég hef gert af sögnum þeim sem þáttur- inn byggir á, til að sýna fram á að eiginlegur söguþráður verksins er eingöngu reistur á þekktum sögnum, sem líklega hafa gengið í munnmælum. Það hlýtur því að teljast eðli- legt að næsta skrefið verði að draga fram helstu frásagnareinkenni og athuga hvort þau ber að sama brunni. ✓ Einkenni munnlegrar frásagnarlistar. Grundvöllur hinnar munnlegu frásagnar- hefðar er frásagnartækni, sem vafalítið hefur verið miög flókin. Tæknin hefur þó án efa fvlgt ákveðnum lögmálum, sem mögulegt ætti að vera að nálgast þótt einvörðungu sé við skrifaða texta að fást. Formgerðirnar eða mvnstrin, sem ég hef reynt að gera grein fyrir hér að framan, eru vitaskuld einn hluti þess- arar frásagnartækni. Formgerðirnar gegna sama hlutverki í sögum og kveðskaparformið gerir í frásagnarkvæðunum, sem mest hafa verið rannsökuð í þeim tilgangi að nálgast einkenni munnlega varðveittra texta. Formið hlýtur þó að vera ákaflega misstór þáttur hefðarinnar. Það er stór þáttur í V-evrópsk- um sagnadönsum, þar sem stófískir hættir ráða ríkjum, en minni í sögum. Rétt er, áður en lengra er haldið, að reyna að gera sér grein fyrir muninum sem er á 32
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.