Mímir - 01.06.1981, Side 94

Mímir - 01.06.1981, Side 94
til þess að upphefja fortíð viðkomandi þjóð- ar; og gömlum sögnum sem villst höfðu á prent var stillt upp sem skjalfestri staðfest- ingu þess, að í æðum þjóðarinnar rynni göf- ugra blóð en það sem finna mátti í æðum annarra þjóða. Þannig að þótt hetjusögurnar séu ekki þjóðernislegar bókmenntir, hafa þær víða átt sinn þátt í að skapa þjóðernistilfinn- ingar. Þær fornu hetjusögur sem við nútímamenn þekkjum hafa borist til okkar á bók. Ein- hverntíma á þróunarferli sögunnar hefur hún verið rituð niður og þannig slitin úr tengsl- um við hina lifandi frásagnarhefð sem hún var hluti af. Hvernig sagan var áður og hvernig hún þróaðist eftir að textinn var færður í letur er ekki alltaf gott að vita, né heldur hvaða breytingum hún tók í hendi skrifarans. í Norður-Evrópu kom ritlistin samfara nýjum sið, kristninni, og kristinn hugsunarháttur hafði að sjálfsögðu áhrif á hinar fornu sögur. Þetta er mjög greinilegt í Bjólfskviðu þar sem fornt sagnaefni er tek- ið til endurmats af kristilega þenkjandi skrif- ara. Þannig fór saman tilkoma ritmáls og nýrra viðhorfa, sem gerðu það að verkum að allt það gamla sagnaefni sem ritað var niður, var undir áhrifum frá hinum nýja sið, svo að þau viðhorf sem koma fram í hetjusögunum eru ekki ætíð þau sömu og þær eru upphaf- lega sprottnar úr. Þó gátu hinir kristnu skrif- arar engan veginn sneitt hjá öllum heiðnum viðhorfum, enda er ekki víst að þeir hafi kært sig um það, svo samgróin voru þau bæði efni og formi sagnanna. Af þessu leiðir vissan tvískinnung í ýmsum verkum, eins og t.d. Bjólfskviðu, þar sem heiðin örlagahyggja blandast kristinni guðstrú, og forn norræn hetja fær svip af þeim suðræna kristi o. s. frv. Þetta verður að hafa í huga þegar fjallað er um kappana sjálfa. Þeir eru ekki alltaf sjálf- um sér samkvæmir vegna þess að saga þeirra er ekki samin af einum manni með það í huga að lýsa ákveðinni persónu, heldur af mörgum mönnum sem höfðu ekki allir sama viðhorf til efnisins. Þessi tvískinnungur er augljós hjá Bjólfi en kemur líka fram hjá Sig- urði Fáfnisbana þótt í minna mæli sé. Ymsir virðast telja það mikinn skaða, þeg- ar fornar bókmenntir svo sem Eddukvæði verða fyrir áhrifum af nýjum viðhorfum áð- ur en þær eru færðar í letur. En þess ber að minnast, að þær hetjubókmenntir sem geymst hafa munnlega áður en þær komust á prent, eiga sér engan einn réttan frumtexta, heldur hafa þær þróast og breyst vegna nýrra menn- ingarstrauma, málbreytinga o. fl. Sá texti sem að síðustu er skrifaður hlýtur því að saman- standa af mörgum „lögum“, sem smám sam- an hafa verið að hlaðast um einhverja beina- grind, sem gæti verið sannir atburðir úr lífi einhvers konungs eða herkappa eins og t.d. Gunnars Gjúkasonar eða Agamemnons At- reifssonar. Þegar textinn svo loksins er kom- inn til okkar á prenti er engin leið að segja nákvæmlega til um hvað er upphaflegt og hvað eru viðbætur; og tækist að reyta af hon- um allar viðbæturnar gæti eins verið að sá kjarni sem leitað var að hafi verið gleymdur löngu áður en textinn var skráður og sé því alls ekki til staðar. Slíkt er því líkast sem undið sé ofan af bandhnykli til að sjá hvað er inni í honum, þótt fingurnir sem fyrst var vafið um hafi verið dregnir út úr hnyklinum löngu áður en hann var fullvafinn. 3. Hetjum má skipta í tvo flokka eftir þeim andblæ sem fylgir þeim, „bjartar hetjur“ og „dimmar“, stundum er líka talað um Sigurð- ar- og Grettistýpurnar. Samkvæmt þessu eru kappar eins og Sigurður, Akkilles, Kári Söl- mundarson og Helgi Hundingsbani „bjartar hetjur“ en t. d. Bjólfur og Grettir Ásmundar- son „dimmar hetjur“. Auðvitað er þessi skipting ekki einhlít, og vel má færa rök að því, að Bjólfur eigi ekki síður margt sameiginlegt með Sigurði en Gretti. En það sem ég er að reyna að gera er 92
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.