Nýir pennar

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Nýir pennar - 15.04.1947, Qupperneq 6

Nýir pennar - 15.04.1947, Qupperneq 6
inga, til dæmis Husseris og Hei- deggers. Sartre kunni illa við sig í Le Havrc. Hann hefur alltaf verið Parísarbúi í orðsins fyllstu merkingu og aldrei unað sér langdvölum fjanú þeirri borg. Innan skamms fór hann aftur til höfuðborgarinnar og fékk þar kennarastöðu, heldur rólega, svo að hann gat skrifað og lesið af kappi fyrir sjálfan sig. Ilann bjó í litlu gistihúsi við Signugötu, þar sem allt úir og grúir af bóka- verzlunum, forngripasöfnum og listasöfnum. Hótel Lousiana var hvorki íburðarmikið né hrein- legt, en hann kunni vel við her- bergið sitt þar og hélt því árum saman. Hann hélt sig lengstum á kaffihúsunum, þar sem and- ans menn Parísarborgar höfð- ust í þá tíð við myrkranna á milli. Hann og félagar hans völdu sér veitingahúsið Flore, og þar sat hann tímum saman, alltaf við sama borðið, las og skrifaði, rabbaði við kunningja og dreypti á glasi. Eins og hin „andlegu“ veitingahúsin í latn- eska hverfinu, þá var Flore eins konar setustofa, fundasalur, bókasafn, vinnustofa og mót- tökuherbergi fyrir rithöfunda og skáld, og óteljandi meistara- verk og „ismar“ urðu þarna til að rneira eða minna leyti. En Jean-Paul Sartre var ekki eins og aðrir heimsspekikennar- ar. Hann lokaði sig ekki inni við bækur, heldur fór oft út í borgina, heimsótti skemmti-_ staðina í Montmartre og Mont- parnasse, hann kynntist almúg- anum, barþjónunum, verka- mönnunum, bílstjórunum og vændiskonunum. Og flest af þessu fólki hefur komið fram Ijóslifandi í sögum Sartres, til dæmis í skáldsögunni „The Age of Reason“. A sumrin lágu þeir Sartre og félagar hans uppi á húsþaki í sólbaði og hlustuðu á amerískar jazzplötur. Þeir lásu óendanlega, ekki aðeins hina strembnu þýzku heimsspekinga, heldur skáldsögur, og Sart.re fékk mikla aðdáun á höfundum eins og Faulkner og Caldwell. Þetta var listamannalif á hæsta stigi, og Sartre ræddi hugmynd- ir sínar um manninn og alheim- inn, er hann gekk um um kaffi- húsin í Saint-Germain-des-Prés klæddur í lambskinn og alltaf með pípu í munninum. Þannig var það, en þannig er það ekki enn. Sartre og sumir 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Nýir pennar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.