Nýir pennar - 15.04.1947, Side 10

Nýir pennar - 15.04.1947, Side 10
aura sinna tal, hefði nýskeð keypt sumarbústað — skammt frá borginni — sem hann hefði lengi haft augastað á. Þar hafði ég fundið ágæta bráð, til að sjá minni vesælu líftóru farborða nokkurn tíma. Ég málaði þegar sumarbústaðinn og umhverfið, og áður en litirnir voru þurrir á striganum bauð ég útgerðar- manninum málverkið. Nýja- brum staðarins og gleðin yfir húsakaupunum virtust enn Ijóma í augum útgerðarmanns- ins. Þetta var hin gamla við- skiptaþekking — að grípa tæki- færið á réttum tíma. Hann beit lika þegar á agnið eins og fávís marhnútur. Ég sá aðeins eftir því, að ég skyldi ekki hafa sett upp helmingi meira, því að ég átti enn eftir að fá málverkið greitt. Og nú, vegna peningavand- ræðanna og þrátt fyrir rigning- una og óveðrið, hafði ég farið heim til hans, til að fá málverk- ið greitt. Hann var ekki heima. — Kæmi í fyrsta lagi heirn klukkan hálf níu. Klukkan var átta. Ég hélt áfram göngu minni í rigningunni. Rétt fyrir klukkan níu hringdi ég aftur dyrabjöllunni í húsi hans. Jú, hann var kominn heim og birtist mér í eigin persónu. — Því miður gat hann ekki verið að snúast í þessu núna. Það voru gestir hjá honum. Gæti ég ekki komið í skrifstof- una á morgun? — Jú, mikil ósköp, ég hélt nú það. Ég bað hann mjög að af- saka ónæðið, sem ég hefði bak- að honum. Ég hefði sem sé að- eins litið svona inn, af því einu, að ég hefði átt leið fram hjá húsinu, laug ég umsvifalaust, hneigði mig auðmjúkur og reyndi að láta á engu bera. — Agætt, sagði hann og bauð mér vindil. Svo stóð ég aftur út á göt- unni, næstum gegndrepa, jafn fátækur og áður, en með vindil í munninum eins og ,,fínn“ mað-- ur. Ég hló með sjálfum mér. Þetta minnti allt á harm- glettna sonnettu um napurleika lífsins. Hvaða tilgang hafði- annars þetta bitra og raunalega mann- líf? Á þessari stundu fannst mér lífið áþekkt lélegum skopleik, sem þrátt fyrir allt missti al- 8

x

Nýir pennar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.