Nýir pennar - 15.04.1947, Side 15

Nýir pennar - 15.04.1947, Side 15
Björn Sigfússon Arfur öreigans og Heiðrekur Guðmundsson Björtum augum lífið lítum, lúabönd af huga slítum. Hlæjum burtu grát úr geði, glæðum andans vaxtarþrá. Þróist fræ, sem falið lá. Finnum aftur barnsins gle&i. Margir fyrst á banabeði birtu lífsins skynjað fá. Birta lífsins er fagnaðarerindi skálds, sem óblíð tilvera hefur hert og gert svartsýnan. Hið undursamlega b'irtist stundum þeim einum, sem þjáðst hafa og vanizt myrkri. „Néista af himins miklu mildi / myrkur- skyggna augað sér“, kvað Einar. Návist dauðans gerir á sama hátt bjart yfir liðnu og hverf- andi lífi. Náðargjafir skálds eru harmar og ljúfsár gleði, sem magna skynjanir og skilning manna á dásamlega hluti, er öðrum þykja hversdagslegir eða fánýtir, þangað til skáld kann að hjálpa þeim til að sjá. Vísa Heiðreks hér að ofan er karlmannleg stefnuskrá. Gleði barns og undrun hinna deyjandi yfir dásemd lífsins getur ekki haldizt ævilangt í vitund nokk- urs manns, sízt viturs manns. En þessa gleði og þessa undrun einsetur hann sér að finna aftur og aftur, fyrst hann hefur eitt 13

x

Nýir pennar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.