Nýir pennar - 15.04.1947, Side 18
skálar þekkingar og þróunar-
trúar. „Heitt og kalt“ þykir fara
vel saman víðar en þarna. Vera
kann, að viðkvæmum Ijóðvin-
um hætti við tannakuli af of
snöggum umskiptum hins log-
heita og kalda, sem fyrir koma
í kvæðum Heiðreks. Við því fær
hann seint séð með öllu. Menn,
sem eru nógu lundlíkir honum
til að skilja fyrirbrigðið, sjá í
kvæðunum, að það er hamur
harðs vilja. En hitinn og kuld-
inn, tilfinningar samferða harð-
geru viti, efla hvor annars bruna
án þess að blandast og eru þá
til skiptis á meðvitundaryfir-
borði skáldsins éins og tveir ó-
líkir straumar (hugkleyfi). Alit
mitt um Haustljóð er þetta:
ekki sérlega merkilegt ljóð, en
vissulega betur birt en óbirt.
Ástarljóðið / Hállormsstaða-
skógi er svo blæfagurt og mynd-
ir þess, svo samstilltar hver við
aðra, að við ]iað þyrfti að gera
sönglag. Kvæðið hefur allan há-
tíðleik hins ástfangna, og að því
stuðlar hið glæsta umhverfi,
þangað til skógur og hágeng sól
eyðist úr vitundinni fyrir ná-
vist og faðmlögum stúlkunnar
hans. Kýmnin seinast um þann
grasaleitarárangur að finna ekki
nema eitt blóm í öllum Hall-
ormsstaðaskógi er svo létt og þó
í ætt við hátíðleikann, að hún
spillir honum á éngan hátt,
myndar brú frá honum yfir í
hversdagslífið. Mér verður hlýtt
til þessa kvæðis.
Móðirin i dalnum er eitt af
þeim kvæðum, sem sýna, að
skáldið er vaxið stórum verk-
efnum, og mér finnst það bezt
orta kvæðið um sitt efni á ís-
lenzku. Harmsaga þess hefur
gerzt á öllum öldum, en ekki
sízt þau 80 ár, sem íslenzki flótt-
inn úr sveitunum hefur verið
meðal helztu þjóðmála . okkar.
Skáld þeirra 80 ára hafa víða
minnzt hennar, en aldrei svo, að
megingildi þessa nýjasta kvæðis
rýrni fyrir þá sök.
Myndin af konu við ösku-
hlóðir sést í fáum dráttum og
skörpum. Glóðarglampar gera
föla andlitið bleikt öðru hverju
og þögular rúnir þess voveifleg-
ar, meðan skáldið les úr þeim
hetjusögu viðkvæmrar móður,
sem átti styrkar hendur og kann
ekki enn að æðrast, en kaleikur
bölsins er henni eiturbikar. Þess
vegna er hún orðin sljó og feig,
væntir einskis framar á himni
né jörð.
16