Nýir pennar - 15.04.1947, Page 19

Nýir pennar - 15.04.1947, Page 19
Andstæða þessarar myndar rifjast upp. Hún er ung, syng- ur um ást og vor, grætur fagn- aðartárum í hamingju sinni með unnustanum hjá eyðibæ, þar sem framtíðarhöll þeirra skal rísa. Og hallirnar reistu þau — í huganum. Ævi hjónanna varð erfið, því að „löngum hefur sá lítil völd, / sem lifið krefur um þyngstu gjöld“. Hallirnar hrundu, og yf- ir rústum þeirra þaut napurlega í minningunni alla ævi. En störf sín leystu þau af hendi og komu upp börnum. Astarsaga þeirra er sögð af djúpum skilningi, hallað á hvor- ugt, ekki breitt yfir neitt né af- sakað, en meginorsök ástleysis tilgreind með afleiðingum. Eftir þetta verður tilvera eiginmanns- ins aukaatriði, hann hverfur úr kvæðinu án umræðu. Börnin urðu henni allt. Þeirra vegna hafði hún unað inni, bundinn fangi, án þess að njóta vorblíðu og fegurðar sveitar sinnar, án þess að njóta nokkurs af því, sem gerði annarra líf hamingjusamt. I þeim fól hún alla ást sína og trú og kynti þeim í hjartanu fórnarbál sitt. En hvað gat þá orðið um hjarta „Það er eigi lítið afrek fyrir son skálds að vaxa upp með föðurnum, verða talsvert eðlislíkur honum, gerast einnig skáld, en ná því sjálf- stæði í skoðunum, tungu- taki og allri braglist. að bergmál frá hinum eldra verði hvergi að meini". Þetta segir greinarhöf- undur um Heiðrek Guð- mundsson, son Guð- mundar á Sandi. Kynnizt þessu unga og efnilega skáldi. hennar, ást og trú, þegar börn- in færu? Með miskunnarlausri bersýni verður skáldið að fylgja þessum mannþekkingarþræði eftir til kulnaðra öskuhlóðanna í kvæðislok. Létt og bjart er yfir leik barn- anna inni á palli, og um glugg- ann Ieika hvítu mjallgusurnar, renna sér líkt krökkum í einni bendu. En slcáldið gleymir ekki að bregða upp líkingu, sem á- 17

x

Nýir pennar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.