Nýir pennar - 15.04.1947, Síða 20

Nýir pennar - 15.04.1947, Síða 20
HAUSTLJÓÐ Blómgróin jörðin brugðið hefur lit. Bliknandi laufin skjálfa í haustsins þyt. Síðustu angan sumardegi frá sölnandi jurtir bregða fyrir vit. Ilúmar að nótt, og haust með kóldum róm hrómandi lífi birtir skapadóm. Nœst, þegar dísir vorsins völdum ná, vex af þess rótrnri stœrra og fegra blóm. Jurtimar blikna. Frœin falla í skjól. Fram veltur stóðugt tímans mikla hjól. Gróandi líf að lokum deyr, - - en þó lyftir því nœsta hœrra móti sól. minnir um kvæðisþráðinn: „með fjaðrir grannar til flugs á braut“. Ungar verða fleygir og fljúga úr móðurhreiðri, nema einhver hefði harðlyndi til að vængstýfa þá. Þannig missti þessi móðir öll sín börn. Hvers vegna er sagan þar með ÖIIP Hvers vegna eygir hún eng- an tilgang framar? Heiðrekur væri minna raunsæisskáld en hann er, ef hann léti því ósvar- að. Hann segir: Þar í þröngu koti gerðist sagan, og þráin, vonin um tilgang, er öll bundin við lokáða hrihginn, þar sem móðirin hafði verið bundinn fangi beztu ár ævinnar. Þjóðfé- lagsádeilan er nokkuð önnur en tíðkast í samkvns Ijóðum. Hér er ekkert vol um það að ganga hljótt hjá verkamannsins kofa, ekki gælt við bölið. Markmið kvæðisins er annars ekki skýringar, heldur að gera mönnum þessa sveitakonu hug- stæða. Myndir þess sveiflast hratt fram í öruggu samhengi til loka, bornar af arnsúg hins dýra, dynfleyga háttar. Um leið og ég hverf frá þessu kvæði, fýsir mig að vita, hvað 18

x

Nýir pennar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.