Nýir pennar - 15.04.1947, Page 32
Þegar þú verður orðinn gamall
maður í Vendée, þá skalt þú
geta sagt barnabörnum þínum,
að einu sinni á æskuárum þín-
um hafir þú þekkt fegurstu
konu Frakklands, og það hafi
ekki kostað þig svo mikið sem
eitt einasta sou“.
Hún opnaði litla skúffu, þar
sem hann hafði kvöldið áður séð
hana setja 5000 frankana.
„Hérna“, sagði hún með und-
urfagurri hreyfingu. „Þú skalt
fá peningana þína aftur“.
Og hún rétti honum fimm
franka.
i
Þegar hið þekkta, ameríska tónskáld, George Gerswin, dó á unga
aldri, skrifaði einn af aðdáendum hans langt og væmið tónverk
til minningar um hinn látna snilling. Hann gat einhvern veginn
fengið píanóleikarann Oscar Levant til að hlusta á verkið, og lék
hann eftirmælin af miklum innileik fyirr Levant. Þegar leiknum
var lokið leit maðurinn á Levant, en sá aðeins andlitsgrettur um
leið og Levant sagði:
„Það hefði verið betra ef þér hefðuð dáið og Gerswin hefði samið
hljómkviðu eftir yður!“
30