Nýir pennar - 15.04.1947, Síða 43

Nýir pennar - 15.04.1947, Síða 43
mannveran var aðeins talandi tákn mikillar og átakanlegrar fátæktar. Blöðin höfðu runnið úr hand- arkrika hennar og lágu á gang- stéttinni fyrir framan hana. II. í myrkrinu undir súðinni voru tvö rúm. Annað var mannlaust og óumbúið, í hinu lágu tvö lítil börn og sváfu. Þau hjúfruðu sig hvort að öðru. Minna barnið, lítill drengur, hafði rjóða hnef- ana á lofti kreppta um dýrleg- an, dreymdan fjársjóð. Þetta var í gráma aftureld- ingarinnar. Glugginn sat fölur í svörtum veggnum, og seyrinn, óráðinn dagur seytlaði inn um fátækleg gluggatjöldin. Á rósrauðum vaxdúknum á borðinu stóð diskur með tveim- ur þykkum brauðsneiðum með smjöri og mysuosti ofan á. Þar stóðu líka tveir smeittir bl'ikk- bollar með bláleitri mjólk. Annars var ekki stássinu fyr- ir að fara í stofunni. Á þilinu var mynd úr Heimilisritinu, nakin kona með sporði; það var hafmey. Á dragkistunni stóðu tveir kettir úr bláu gleri og ljós- mynd af ungri stúlku í dökkum fcrmingarkjól og með fölt, svip- laust andlit. Þetta var líklega móðir barnanna, og meira vissu þau sennilega ekki um hana. Nú tóku þau að láta á sér bæra yfir í rúminu. Litli snáðinn greip í fléttuna á systur sinni og kippti dugiega í hana. Hún fór á fætur og hjálpaði honum að klæðast. Hún var smáleit, andlitið fölt og umburðarlyndi og seigla í svipnum, augun al- varleg og framkoman hæglát, ráðsett og fullorðinsleg — eins og jafnan er um litlu, eldri syst- urnar í skuggalegu og óvist'legu súðarherbergjunum, se'm liggja norðan í móti. Hún þvoði hon- um og áminnti hann og greiddi honum. Að því búnu settust þau að snæðingi. Þau voru búin að gefa Guði þökkina, og Nils sat nú og tal- aði lágt og kumpánlega við blikkdósina Kolumbus. En Kristín sat auðum höndum, því að það var sunnudagur. Kolumbus hafði upphaflega verið málaður fögrum litum, rauður og blár og gulur og grænn; en nú var málningin því sem næst alveg dottin af. Hann var beyglaður og illa farinn; en bak við hið óbrotna og tilkomu- 41

x

Nýir pennar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.