Nýir pennar - 15.04.1947, Qupperneq 49
týnzt á næturþeli, en hins vegar lítið ofið í dánarheimum. Þeir
dönsuðu eigi að síður, draugarnir. Hollendingur lék á fiðlu fyrir
dansinum. Einungis ein kona, er líktist móður hans, sem orðið hafði
úti, stóð grafkyrr með krosslagðar hendur á brjósti og horfði ásak-
andi á hann. En stundum otaði hún í hann vísifingurbeinunum
eins og til að fæla hann burtu.
Ferðalangurinn rámkaði við sér, og hrollur fór um hann: „Lét
ekki hún fóstra mín rjóða messuvíni og skírnarvatni í augun á
mér, og hvers vegna þurfti ég þá að verða skyggn? Hvers vegna
þarf ég, sem dey voveiflega, að sjá þessar ógnir sandsins, sem öðr-
um er hlíft við, þangað til þeir farast? Hvert viltu, móðir mín, að
ég flýi, fyrst draugarnir bíða mín, þangað til ég kem? Er ekki
betra strax? Lífið er víti. En draugamir dansa, ha, ha, ha. Ha, ha,
ha, ha, ha, ha, ha“.
Enn einu sinni reyndi ferðalangurinn þó að velta gátu lífs síns
fyrir sér með geðró.
Þá er hann fór í verið fyrir nokkrum mánuðum, var hann heit-
bundinn, en litlu fyrir uppdráttarveizluna fékk hann uppsagnar-
bréf frá unnustunni. Bréfið las hann aftur og aftur. Það var á
þessa leið:
„Ég er þín í rauninni a!ls ekki verð. ... Þú átt sannarlega skilið
að fá betri konu en mig. ... Það er holdsveiki í ættinni minni. ...
En úr því að Jón á Brekku, sem veit um þenna og aðra ókosti á
mér, vill samt eiga mig, þá verður lýst með okkur á sunnudaginn
kemur. . . . Pabbi hefur alltaf verið á móti því að gefa mig jarð-
næðislausum og sauðiausum manni, hefur talið mig fara í hund-
ana, ef ég ætti þig. Að vísu er hann sjálfur orðinn slitinn, þyrfti
að hætta búskap og fara í hornið, — frá Dimmanúpi mun hann
aldrei flytjast, — en hann vill ekki, að þú takir við Núpnum, held-
ur, að heylanirnar yrðu þá ekki háar, sauðirnir týndu töiunni,
kveðst í einu orði sagt heldur vilja fleygja mér í mógröf. Annars
er skrýtið að ýmislegt kemur fyrir okkur um ævina, sem við get-
um engan hemil haft á, og þó einkum það, að margt getur átt
upptök sín í sjálfum okkur, er við ráðum ekkert við, — ég á við
47