Bergmál - 01.05.1955, Blaðsíða 4
SPAKMÆLÍ
Nú er því svo farið, að ó-
ánægðum manni hættir mjög til
þess að leita orsakar óánægju
sinnar hjá öðrum, og þá helzt
hjá þeim, sem nátengdastur er.
(Leo Tolstoj).
★
Margir eru svo gerðir, að þeir
eru fljótir til að fordæma það,
sem þeim geðjast ekki að, eða
það sem þeir skilja ekki.
(Maugham).
★
Að njóta eða veita nautn án
þess að skaða sjálfan sig eða
nokkurn annan, það er list og
í því álít ég að allt siðgæði sé
fólgið.
★
Hin bezta hugsanleg heim-
speki, sem hægt er að beita í
samskiptum sínum við með-
bræðurna, er að sameina góð-
látlega kímni fyrirlitlegu af-
skiptaleysi. ( Chamfort).
★
Þeir eru ótrúlega margir, sem
aldrei. komast að raun um að
sjóndeildarhringurinn er hreyf-
anlegur.
Sá, sem ekki keppir að vissu
marki, villist ekki
(Basse Gustafsson).
★
Almennt séð, er miklu meira
af fyndni en gáfum í þessum
heimi.
í samkvæmislífinu úir og
grúir af fólki, sem alltaf er að
segja fyndni, en skortir algjör-
lega gáfur.
(De Rivarol).
★
Vissir hlutir eru algjörlega
óþolandi, ef þeir eru aðeins
annars flokks: Skáldskapur,
hljómlist, málverk og ræður.
( Bruyére )
★
Því lengur, sem ég lifi, því
sannfærðari verð ég um það, að
það sem var nógu gott handa
íeðrum okkar, er ekki nógu
gott handa okkur.
(Oscar Wilde).
★
Lyndiseinkunn manna sézt
bezt á því hvað þeim finnst
hlægilegt. (Goethe).
2