Bergmál - 01.05.1955, Side 12
M A í
B E R G M A L-----------------
„Ég var úti,“ svaraði ég sann-
leikanum samkvæmt.
i,Vertu ekki að snúa út úr.
Með hverjum varstu?“
„Ja, ef þú þarft nauðsynlega
að vita það, þá heitir hann Ter-
ence Bates, bílkennarinn.“
Og þá leysti mamma frá
skjóðunni. Það er óþarfi að end-
urtaka það sem hún sagði, er
einkum snerist um það, að ég
hegðaði mér eins og ómerkileg
gála, og legði lag mitt við hvern
sem væri. Pabbi reyndi tvisvar
eða þrisvar að grípa fram í fyrir
henni, en hún lét hann aldrei
komast að.
Ég lét hana tala út, en létti
því næst á hjarta mínu gagn-
vart ,henni. „Hverju öðru gaztu
búizt við? Ef ég hefði sagt þér,
að ég vildi bjóða Terence heim,
þá hefðir þú haft einhver ráð
með að fæla hann á brott. Frá
því ég man fyrst eftir mér hefur
þú fælt á brott alla þá kunn-
ingja mína, sem þér hefir ekki
geðjast að. Ekki þó með því að
banna mér að umgangast þá.
Nei, til þess varst þú of slungin.
Þú hæddir vini mína og særðir
þá svo að þeir gáfust upp á að
koma hingað. Hvernig getur þú
svo ásakað mig fyrir að bjóða
Terence ekki hingað heim?“
Þegar ég hafði lokið þessum
lestri, hljóp ég upp á loft. Ég
heyrði að pabbi sagði all-fast-
mæltur. „Agnes, er þetta satt?“
Ég hraðaði mér inn í svefn-
herbergi mitt og lokaði á eftir
mér.
Um morguninn vaknaði ég
við það, að mamma barði að
dyrum hjá mér. Hún gekk að
rúminu mínu og settist á brík-
ina. „Cynthia — þessi Terence
Bates. Ert þú------“ Hún sagði
ekki fleira, en ég skildi fullvel
hvað hún átti við.
„Nei,“ svaraði ég dauflega og
forðaðist að horfast í augu við
hana. „Ég fer ekki oftar út með
honum. Við slitum öllum kunn-
ingsskap í gærkvöldi. Þú getur
verið áhyggjulaus þess vegna.“
„Nú ert þú skynsöm stúlka,“
sagði hún og varp öndinni létt-
ar. „Mér þykir leitt, að ég skyldi
tala svo hörkulega til þín í gær-
kvöldi, en mér voru það svo
mikil vonbrigði að þurfa að
hugsa til þess, að þú fórnaðir
þér fyrir mann, sem er svo sem
ekki neitt.“
Eitt andtartak blossaði upp-
reisnarandinn í brjósti mér
aftur. Ég leit hvasst á móður
mína og hugsaði fyrirlitlega:
Hvaða rétt hefir hún til að vera
svona hégómleg og full for-
dildar?
10