Bergmál - 01.05.1955, Síða 17
1955
B E R G M A L
tíðin krafist þess, að ég bæri
ábyrgð gerða minna.
Ég vissi að ég yrði að fara og
heimsækja Ellu frænku —
mamma gat ekki farið. Ég þoldi
ekki að hugsa þá hugsun til
enda, hvað gerast myndi er ég
kæmi þangað.
Hugsanir og ráðagerðir hring-
snerust í höfði mínu á meðan ég
tók til farangur minn. Einhver
hluti af mér fagnaði því þó, að
fá loks tækifæri til að sjá dóttur
mína, en á hinn bóginn kveið ég
því hvað gerast kynni ef Ella
frænka næði sér ekki aftur.
Og áður en ég lagði af stað í
ferðina, bárust fregnir um, að
frænka væri dáin.
Loks, er ég var komin upp í
járnbrautarvagninn, tók ég á-
kvörðun.
Harry myndi ekki hafa neitt
á móti því, að ég bætti einu
barni á heimili okkar og tæki
telpuna að mér, því að hann
hafði sagt, strax þegar hann
heyrði um veikindi Ellu frænku:
„Vesalings Thelma litla. Hún
hlýtur að eiga mjög bágt. Ég
vona að þú takir hana með þér
þegar þú kemur til baka. Við
höfum efni á því. Liz og Helen
mundu báðar fagna því að eign-
ast stóru-systur.“ Hann kyssti
mig.
Þegar ég hafði loks tekið þá
ákvörðun að taka dóttur mína
með mér til baka leið mér
margfalt betur. Og nú fyrst
varð mér hlýtt um hjartarætur
við þá tilhugsun að fá að sjá
hana. Hvernig skyldi hún líta
út?
Frú Jackson tók á móti mér á
járnbrautarstöðinni og fór með
mig beina leið heim til sín, en
hún bjó í næsta húsi við hús
Ellu frænku. Ég spurði þegar
eftir Thelmu. „Hún er inni í
dagstofunni, vesalingurinn litli,“
sagði frú Jackson, um leið og
hún vísaði mér þangað inn.
Telpan hafði hniprað sig saman
í stórum hægindastól og sneri
baki að okkur. Hún hreyfði sig
ekki fyrr en frú Jackson talaði
blíðlega til hennar:
„Thelma, frænka þín, frú
Hunter, er komin hingað “
Telpan stóð á fætur og sneri
sér að mér. Ég var með ákafan
hjartslátt, og stóð í fyrstu orð-
laus og starði á dóttur mína.
Hún var hávaxin eftir aldri,
mjög grönn, með ljóst, bylgjað
hár, náföl í andliti og augun
társtokkin. Telpan var í einu og
öllu lifandi eftirmynd mín.
Ég var grátklökk af geðshrær-
ingu og breiddi út faðminn á
móti henni. Hún hjúfraði sig
\
15