Bergmál - 01.05.1955, Side 19
B E R G M Á L
1 955 -------------------------
fyrst þú segir það,“ sagði hún
snöktandi.
Ég dvaldist þarna nokkra
daga enn til að ganga frá eigum
Ellu heitinnar frænku, og þegar
kom að brottfarardegi mínum
virtist mér Thelma vera farin
að sætta sig betur við tilhugs-
unina um að setjast að hjá Jack-
son hjónunum.
Og þegar ég fór fannst mér
ég hafa gert það sem skynsam-
legast væri, hvað svo sem sam-
vizka mín segði. En samt fannst
mér eins og ég væri að skilja
við hluta af sjálfri mér. Ég fann
það að ég elskaði Thelmu af öllu
hjarta. Og við grétum báðar, er
við kvöddumst.
Harry brá er hann sá mig
aftur, svo föl og þreytuleg var
ég þegar ég kom heim. Ég reyndi
eins og ég gat að hrista af mér
áhyggjurnar, en það tókst ekki.
í hvert skipti sem ég leit yngri
dæturnar mínar tvær varð mér
ósjálfrátt hugsað til hinnar
þriðju. — Dótturinnar, sem ég
hafði ekki viðurkennt, og ég
óskaði þess af heilum hug, að
hún yrði hamingjusöm á heimili
Jackson hjónanna.
í hvert skipti sem við Harry
vorum ein saman fann ég knýj-
andi þrá til að trúa honum fyrir
hinu saknæma leyndarmáli
mínu. Og jafnframt var ég
haldin sífelldum ótta við að ég
myndi ósjálfrátt koma upp um
mig.
Mamma var dálítið hressari
þegar ég kom aftur. Ég sagði
henni frá Thelmu og hún gladd-
ist yfir því, að ég hafði tekið þá
ákvörðun að skilja hana eftir.
Henni fannst það ganga brjál-
æði næst af mér, að láta mér
detta í hug að taka hana heim
með mér.
Ég skrifaði Thelmu tvisvar í
viku eftir að ég kom heim og
hún svaraði hverju bréfi mínu.
í fyrstu bréfunum, sem ég fékk
frá henni var ekki hægt að heyra
annað en henni liði vel hiá
Jackson hjónunum. En um hálf-
um öðrum mánuði síðar fékk ég
stutt bréf frá henni, sem olli
mér gífurlegum áhyggjum.
„Frú Jackson lætur mig vinna
svo mikið,“ skrifaði hún. „Ég
virðist ekki géta gert neitt svo,
að henni líki það vel. Mér líður
svo illa.“
Ég minnist þess ekki nú að ég
tæki að yfirlögðu ráði ákvörðun
um að sækja dóttur mína. Allt
sem ég man er það, að ég var
skyndilega viss um það, að ég
gæti ekki lengur brugðist skyldu
minni gagnvart mínu' eigin
17