Bergmál - 01.05.1955, Side 27
1955
Bekgmál
hann. „Hann var allra bezti ná-
ungi. Mér líkaði hann vel.
Hann var alltaf vel til fara og
viðmótsglaður. Hann var að
vissu marki fríður, hrokkin-
hærður og bleik-hvítur í kinn-
um. Stúlkunum leizt vel á hann.
Hann gerði engum neitt, hann
var aðeins dálítið taumlaus.
Auðvitað drakk hann nokkuð
um of. Svona mönnum hættir
til þess. Peninga fékk hann
senda ársfjórðungslega og svo
vann hann sér svolítið inn við
spilamennsku. Hann vann til
dæmis töluvert af mér.“
Burton hló ofan í bringu sína.
Ég vissi af eigin reynslu að
Burton kunni að tapa fé í spil-
um án þess að láta vonbrigði
sín í ljós. Hann strauk sér yfir
hökuna með grannri hendinni;
æðarnar sáust mjög greinilega
og höndin virtist allt að því
gegnsæ.
„Ég býst við að það hafi verið
þess vegna sem hann kom til
mín þegar hann þraut fé; það
og svo hitt að ég var nafni hans.
Hann kom að máli við mig á
skrifstofunni dag nokkurn og
bað mig um að taka sig í vinnu.
Mér kom þetta nokkuð á óvart.
Hann sagðist ekki mundu fá
meiri peninga að heiman og nú
vantaði sig vinnu. Ég spurði
hann, hvað gamall hann væri.
„Þrjátíu og fimm,“ sagði hann.
„Og við hvað hefir þú unnið,“
spurði ég.
„Ég hef ekki unnið mjög
mikið né lengi,“ sagði hann.
Ég gat ekki varizt brosi.
„Ég er hálf hræddur um að
ég hafi ekkert handa þér eins
og er,“ sagði ég. „Komdu aftur
að öðrum þrjátíu og fimm árum
liðnum og þá skal ég athuga
málið nánar.“
Hann hreyfði sig ekki. Hann
fölnaði. Hann hikaði eitt andar-
tak og sagði mér svo, að hann
hefði verið óheppinn í spilum
þá nýverið. Hann hafði hætt að
spila bridge og snúið sér að
póker og tapað. Hann átti ekki
grænan túskilding. Hann var
búinn að veðsetja allt sem hann
gat losað sig við. Hann gat ekki
borgað hótelreikninginn og fékk
ekkert skrifað lengur. Hann var
bjargarlaus. Ef hann fengi ekki
eitthvað að gera yrði hann að
fremja sjálfsmorð.
Ég virti hann fyrir mér tíma-
korn. Ég sá að hann var illa
haldinn. Hann hafði sýnilega
drukkið meir en venjulega og
leit út fyrir að vera fimmtugur
Stúlkunum hefði varla litizt
mjög vel á hann, ef þær hefðu
séð hann þá.“
25